Grants from the memorial fund

News

Þrjú verkefni hlutu styrk úr Minningarsjóði Helgu og Bjarna við hátíðlega athöfn í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju. Smáforritið Orðagull, heimanámsaðstoð fyrir nemendur og íþróttastarf fatlaðra.

Úthlutun styrkja úr Minningarsjóði Helgu og Bjarna

On 8th March, grants were awarded from the Helga and Bjarni Memorial Fund at a ceremony in Hásölum, the parish hall of Hafnarfjörður Church, on Bjarni Snæbjörnsson's birthday. Magnús Snæbjörnsson presented the grants on behalf of the board of the Memorial Fund, which he chairs alongside the Reverend Jón Helgi Þórarinsson and Rósa Guðbjartsdóttir.

Að þessu sinni hlutu þrjú verkefni styrki. Bjartey Sigurðardóttir og Ásthildur Snorradóttir hlutu 500 þúsund kr. styrk, til að þróa smáforritið Orðagull sem hefur það markmið að efla orðaforða, vinnsluminni, heyrnræna úrvinnslu og máltjáningu. Samstarfshópur sem stendur fyrir heimanámsaðstoð fyrir nemendur af erlendum uppruna fékk 450 þúsund krónur og íþróttafélagið Fjörður 500 þúsund krónur til að efla íþróttaskóla félagsins.

Minningarsjóður Helgu og Bjarna hefur starfað frá árinu 2006 og hlutverk sjóðsins er að styðja við og efla einstaklinga, fyrirtæki eða opinbera aðila í Hafnarfirði sem veita börnum, sem glíma við hvers konar erfiðleika, þjónustu og aðstoð. Frá stofnun sjóðsins hafa 27 verkefni fengið styrkveitingar. Er það von fjölskyldu Helgu og Bjarna að styrkirnir verði til að efla enn frekar það góða og gefandi starf styrkþega í garð hafnfirskrar æsku. 

Frekari upplýsingar veitir Magnús Snæbjörnsson, formaður Sjóðsstjórnar: magnuss@simnet.is   

Suggestion portal