Creative Summer Jobs – Birta / Urður Magazine

News

Birta Bjarkadóttir, listakona og skáld, vinnur á vegum Skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði í ár að tímaritinu Urður, sem samanstendur af frásögnum eldra fólks í Hafnarfirði.

Birta Bjarkadóttir vinnur að tímaritinu Urður á vegum skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði í ár. Hún er listakona og skáld sem vinnur með ólíka miðla, en fæst einkum við klippimyndagerð og skrif. Hún er nýútskrifuð úr grunnnámi í sagnfræði og hefur mikinn áhuga á rannsóknum sem snúa að minni, minningum og fortíðarþrá.

Frásagnir og minningar

Í tímaritinu Urður safnar Birta saman frásögnum og minningum Hafnfirðinga. Það gerir hún í gegnum fjölbreytt form; sögur, ljóð og ljósmyndir, en einblínir að miklu leiti á söknuð og skoðar hvernig fólk man og rifjar upp fortíðina. Tímaritið samanstendur af innsendu efni, frumsömdu efni og ljósmyndum.

Útgáfuhóf í Nýsköpunarsetrinu 24.ágúst

Fylgjast má með þessu frábæra verkefni og skapandi listakonu á Instagram undir notendanafninu @timaritidurdur, en þar verður einnig hægt að nálgast vefsíðu verkefnisins þegar að því kemur. Birta bíður öll hjartanlega velkomin í útgáfuhóf tímaritsins í Nýsköpunarsetrinu við lækinn mánudaginn 24. ágúst milli kl.16:00 og 18:00. Þar mun listakvárið Iron ore einnig sýna og selja vasakverið sitt um huldufólk.

About Creative Summer Jobs 2026

In the summer of 2021, the Municipality of Hafnarfjörður, in collaboration with the town's youth centre, Hamarinn, decided to revive the “Creative Summer Jobs” project, which had been run in the summer of 2017. Individuals and groups aged 18-25 were invited to submit ideas for creative projects in Hafnarfjörður. Selected groups were given the opportunity to work on various creative projects in different areas of the arts, which would also liven up the town's social life and delight tourists and residents in one way or another. The staff of the Creative Summer Jobs, run as part of the Hafnarfjörður Work School, are tasked with bringing the town to life, making it more fun, beautiful and diverse with artistic and creative events. The projects are varied and appeal to different age groups and interests.

This year, there are nine diverse projects operating as part of the Creative Summer Jobs scheme, and they will be presented weekly throughout the summer.

Suggestion portal