Work on apartment complex to begin

News

Drafts of the main drawings, which the client has decided to build from, are now available.

Hafnarfjarðarbær, fyrir hönd Arnarhrauns 50 íbúðafélags
hses auglýsir í næstu viku eftir í hönnun og byggingu sambýlis við Arnarhraun
50 í Hafnarfirði samkvæmt alútboðsgögnum. Þar er um að ræða sex sérbýli í
íbúðakjarna sem samtals telur um 351 fermetra. Nú þegar liggja fyrir drög að
aðalteikningum sem verkkaupi hefur ákveðið að byggja eftir og skulu bjóðendur
taka mið af því í tilboði sínu.

 

Undirbúningur að íbúðakjarnanum hefur staðið yfir á þessu
kjörtímabili og er markmiðið að hann uppfylli þarfir einstaklinga með
fötlun.  Arnarhraun 50 er gróinn og
fallegur staður í hjarta Hafnarfirði steinsnar frá allri þjónustu og lífsægðum
sem Hafnarfjörður hefur uppá á bjóða. 
Miklar væntingar fylgja verkefninu en fyrstu íbúar kjarnans munu geta
flutt þar inn haustið 2019.

 

Þeir sem óska eftir að fá send alútboðsgögn skulu
senda beiðni um það á netfangið stefan@vsb.is.
Tilboð verða opnuð hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu bæjarins að Norðurhellu
2, þriðjudaginn 29. maí 2018, kl. 11.00.

Suggestion portal