Kaldársel 100 years – Spring festival on Ascension Day
Vorhátíð verður í Kaldárseli á morgun í tilefni af 100 ára afmæli sumarbúðanna. Einnig hefur verið sett upp ljósmyndasýning í tilefni afmælisins í Hellisgerði.
Vorhátíð og sýning fyrir 100 ára Kaldársel
Byggðasafn Hafnarfjarðar hefur komið upp sýningu á myndum frá sumarbúðunum KFUM/K í Kaldárseli í Hellisgerði. Tilefnið er að í ár eru 100 ár liðin frá stofnun þeirra.
Afmælisvorhátíð Kaldársels verður einmitt á morgun fimmtudaginn 29. maí, uppstingingardag. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá í Kaldárseli frá kl. 11:00-16:00.
Dagskráin hefst formlega kl. 11:00 í Kaldárseli
- 11:00 Fánahylling og í beinu framhaldi leiðir Þórarinn Björnsson rólega sögugöngu um nærumhverfið.
- 12:00 Pylsur og fleira í boði fram eftir degi meðan birgðir endast.
- 13:00 Útisamkoma þar sem Ásgeir Páll Ágústsson leiðir samsöng og séra Petrína Mjöll Jóhannesdóttir hefur hugvekju.
- 14:00 Tvær gönguferðir: Helgafell og Fosshellir-Valaból.
Erindi um Kaldársel fyrr og nú í máli og myndum flutt nokkrum sinnum yfir daginn. - Einnig rúllandi myndasýning og stuttmynd frá 1948.
Hoppukastalar verða á staðnum og að sjálfsögðu býður náttúran upp á spennandi tækifæri fyrir frjálsan leik.
Ljósmyndasýning í Hellisgerði
Og aftur að sýningunni í Hellisgerði. Svanhvít Tryggvadóttir, sérfræðingur hjá Byggðasafni, vann hana í tilefni afmælisins. Hún segir mikið til af ljósmyndum.
„Þau sendu okkur myndir frá 1925 til dagsins í dag og nú eru skiltin sex. Fimm þeirra spannar hvert 20 ár,“ segir hún. „Lokaskiltið er svo heiðursskilti Sigrúnar Sumarrósar Jónsdóttur matráðs og Benedikts Arnkelssonar forstöðumanns. Þau voru nánast í 50 sumur í sumarbúðum Kaldársels,“ segir Svanhvít.
Frítt í Hellisgerði. Einnig á vorhátíðina í Kaldárseli en frjáls framlög vel þegin.
Innilega til hamingju með öldina í sumarbúðunum!