Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar þann 27.08.2019 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingum á deiliskipulagi Hellnahrauns 2. áfanga, er nær til lóðanna við Álfhellu 10 og Einhellu 7, í samræmi við 1.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í breytingunni felst að: lóðirnar við Álfhellu 10 og Einhellu 7 eru sameinaðar. Byggingarreitum er breytt. […]
Category: News
The VITINN podcast – a new episode is now live.
Nýr þáttur Vitans er kominn í loftið. Í þessum þætti spjallar Sigurjón Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs Hafnarfjarðarbæjar, við Önnu Báru Gunnarsdóttur deildarstjóra þjónustuvers Hafnarfjarðarbæjar. Anna Bára og hennar starfsfólk standa í framlínusveit Hafnarfjarðarbæjar og þjónusta gesti af öllum þjóðernum í mismunandi erindagjörðum alla virka daga og það í gegnum margar mismunandi þjónustuleiðir. Góð þjónusta […]
Hefur þú prófað íþróttir fatlaðra? Paralympic dagurinn!
Paralympic-dagurinn er stór og skemmtilegur kynningardagur á þeim íþróttum sem fatlaðir stunda á Íslandi. Þetta er fimmta árið í röð sem Íþróttasamband fatlaðra stendur fyrir Paralympic-deginum. Íþróttafréttamaðurinn Haukur Harðarson mun stýra deginum sem fram fer laugardaginn 19. október í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal frá kl. 13-16. Allir velkomnir! Kynning á handahjólreiðum, boccia, knattspyrnu, bogfimi, fimleikum og […]
Heilsueflandi Hafnarborg
Hafnarborg – menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar hefur nú gerst opinber þátttakandi í verkefninu Heilsubænum Hafnarfirði og mun hér eftir leggja aukna áherslu á þá þætti í starfseminni sem taldir eru hafa góð áhrif á andlega, félagslega og jafnvel líkamlega heilsu gesta. Hafnarborg hefur áður komið að verkefninu með m.a. þátttöku í hinum árlegu menningar- og […]
Fimmtán verkefni hljóta menningarstyrk
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar afhenti í dag styrki úr seinni úthlutun menningarstyrkja ársins 2019. Fimmtán verkefni hlutu styrk að þessu sinni; einstaklingar, menningarhópar eða samtök sem eiga öll það sammerkt að tengjast Hafnarfirði með einum eða öðrum hætti. Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar eru afhentir tvisvar sinnum á ári til menningarverkefna sem líkleg eru til […]
Drög að rammaskipulagi hafnarsvæðis
Drög að rammaskipulagi Flensborgarhafnar og Óseyrarsvæðis liggja nú fyrir og hafa drögin verið lögð fram til kynningar. Tekið er á móti ábendingum og hugmyndum til og með föstudeginum 15. nóvember næstkomandi. Hægt er að senda tölvupóst á netfangið: hafnarfjordur@hafnarfjordur.is auk þess sem hægt er að senda hugmyndir í gegnum samráðsvettvanginn Betri Hafnarfjörð. Sjá fyrirliggjandi drög […]
Bæjarbúar taki þátt í mótun nýrrar menntastefnu
Hjá Hafnarfjarðarbæ er í mótun ný menntastefna í virku samstarfi allra hagsmunaaðila og áhugasamra sem verður tilbúin á vormánuðum 2020 og gildir í 10 ár. Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, sviðsstjóri mennta- og lýðheilsusviðs, segir að skólastefna eigi að vera einföld og sameina grunngildi allra í skólasamfélaginu. „Við þurfum að draga upp sameiginlega mynd af því […]
Getum bætt svefn á margan hátt
Góður nætursvefn eykur lífsgæði, hamingju og framleiðni og er ein mikilvægasta grunnstoð andlegrar og líkamlegrar heilsu. Heilsubærinn Hafnarfjörður býður íbúum og öllum öðrum áhugasömum að eiga saman notalega kvöldstund í Bæjarbíói 16. október næstkomandi. Þar verður m.a. fjallað um leiðir til að öðlast betri nætursvefn. Eitt af þremur yfirmarkmiðum heilsustefnu er að efla vellíðan íbúa […]
Nýr forstöðumaður Bókasafns Hafnarfjarðar
Sigrún Guðnadóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns Bókasafns Hafnarfjarðar. Hún hefur frá árinu 2008 starfað hjá Bókasafni Kópavogs, nú síðast sem útibússtjóri Lindasafns ásamt því að vera staðgengill forstöðumanns Bókasafns Kópavogs. Áður starfaði Sigrún í aðalsafni Borgarbókasafns Reykjavíkur frá 2001 til 2007. Sigrún er með BA próf í bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands […]
Krabbameinsfélagið heimsækir Hafnarfjörð
Stjórn Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins ákvað í tilefni sameiningar Krabbameinsfélags Reykjavíkur og Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar 2018 og sjötíu ára afmælisársins að heimsækja sveitarfélögin á félagssvæðinu. Hafnarfjörður var sóttur heim í síðustu viku. Í nýliðinni viku heimsóttu stjórn og stjórnendur Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins Hafnarfjörð og voru það bæjarstjóri Rósa Guðbjartsdóttir, Geir Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi, Fanney D. Halldórsdóttir sviðsstjóri mennta- […]