A packed schedule all summer – Brochure in the post

News

Já, það eru viðburðaríkar vikur framundan hér í Hafnarfirði. Bæklingur með öllum helstu viðburðum sumarsins hefur nú verið borinn í hús í bænum.

Sumarið er tíminn í Hafnarfirði

Bæklingur með öllum helstu viðburðum sumarsins hér í Hafnarfirði hefur nú verið borinn í hús í bænum. Þeir sem ekki hafa fengið eintak geta nálgast hann í sundlaugum, söfnum og þjónustuverinu okkar strax eftir helgi.

Já, það eru viðburðaríkar vikur framundan. Meðal viðburða má nefna: Sjómannadaginn við Flensborgarhöfn 7. júní, Hafnarfjarðarhlaupið 11. júní og hina vinsælu Víkingahátíð á Víðistaðatúni dagana 16.–21. júní. Þá verður þjóðhátíðardeginum fagnað með fjölbreyttri dagskrá um allan bæ 17. júní.

Leikhópurinn Lotta sýnir söngleikinn Colourland í Hellisgerði 21. júní og Hjarta Hafnarfjarðar verður haldið í tíunda sinn dagana 25. júní til 1. ágúst með fjölbreyttri dagskrá í miðbænum. Síðar í sumar taka við viðburðir á borð við Almyrkva á sólu, Álfahátíð í Hellisgerði, Vegan Festival og menningarhátíðina Heima og himingeima.

Auk stærri viðburða verða menningar- og heilsugöngur í boði alla miðvikudaga í sumar. Göngurnar eru fjölbreyttar og leiða þátttakendur um sögu, menningu og náttúru Hafnarfjarðar, allt frá hafnarsvæðinu og Ástjörn að Hvaleyrarvatni og Sléttuhlíð.

Við hvetjum íbúa og gesti til að kynna sér dagskrána og njóta þess sem Hafnarfjörður hefur upp á að bjóða í sumar.

Helstu viðburðir sumarsins í Hafnarfirði 2026

  • 1st June – 118 ára afmæli Hafnarfjarðarkaupstaðar
  • 7. júní – Sjómannadagurinn við Flensborgarhöfn
  • 11. júní – Hafnarfjarðarhlaupið (5 km og 10 km)
  • 13.–28. júní – Sönghátíð í Hafnarborg
  • 16.–21. júní – Víkingahátíð á Víðistaðatúni
  • 17th June – Þjóðhátíðardagur Íslendinga með dagskrá um allan bæ
  • 21. júní – Leikhópurinn Lotta sýnir Colourland í Hellisgerði
  • 25. júní – 1. ágúst – Hjarta Hafnarfjarðar í miðbænum
  • 12. ágúst – Almyrkvi á sólu / Horfðu heima í Hafnarfirði
  • 16. ágúst – Álfahátíð í Hellisgerði
  • 30. ágúst – Vegan Festival á Thorsplani
  • 4.–6. september – Heimar og himingeimar, búninga- og leikjahátíð

Fastir viðburðir í sumar

  • Cultural and health walks alla miðvikudaga frá júní til ágúst
  • Hafnarfjörður Museum of Local History opið alla daga yfir sumarið
  • Port city með fjölbreyttar sýningar og viðburði
  • Nýtt Bókasafn Hafnarfjarðar opnar í Firði í júlí

Þetta eru stærstu viðburðir sumarsins, en í bæklingnum má finna fjölmarga smærri viðburði, göngur, sýningar og fjölskylduskemmtanir sem gera Hafnarfjörð að lifandi og fjölbreyttum sumarbæ.

Suggestion portal