Cultural and Health Walks in Hafnarfjörður 2026
Come out for a walk every Wednesday this summer. Guided town walks will be offered every Wednesday this summer. Most…
Come out for a walk every Wednesday this summer
Guided town walks will be offered every Wednesday this summer. Most walks take about an hour, participation is free and all are welcome. The walks are a collaboration between Hafnarfjörður Library, the Hafnarfjörður Folk Museum, Hafnarborg and Healthy Town of Hafnarfjörður. Komdu út að ganga!
3. júní kl. 20- Tónlistin og bæjarlífið
Jónatan Garðarsson leiðir fyrstu göngu sumarsins, um miðbæ Hafnarfjarðar. Við rifjum upp sterka tengingu tónlistar og bæjarlífsins. Fjallað verður um Friðrik Bjarnason, Sönghátíð í Hafnarborg, kirkjutónlist, Vinaminni, unglingaböll, Skiphól, Skútuna, Hjarta Hafnarfjarðar og margt fleira. Gengið verður frá Hafnarborg.
10. júní kl. 17 – Sögugerð og sprell
Hugrún Margrét leiðir hjólastóla- og barnavagnavæna göngu frá Flensborg niður að Óla Run túni. Þátttakendur skapa saman alls konar bullsögur. Niðri á túni verða sögurnar lesnar upp, svo farið í sígilda útileiki og boðið upp á létta hressingu. The walk will set off from Flensburg.
17. júní – Gleðilegan þjóðhátíðardag!
Varied programme um allan bæinn.
24. júní kl. 20 – Slóðir alþýðukonunnar
Valgerður Sigurðardóttir leiðir göngu um söguslóðir alþýðukonunnar í Hafnarfirði. Rýnt verður í líf, aðstæður og sögu kvenna í bænum á fyrri tímum. Gengið verður um vesturbæinn og dvalið við staði sem tengjast daglegu lífi og sögu kvenna í hverfinu. Gestum gefst kostur á að skoða nýja sýningu um alþýðukonuna í skúrnum við Siggubæ áður en gangan hefst. Gengið verður frá Siggubæ, Kirkjuvegi 10.
1. júlí kl. 17 – Fjölskylduganga í Valaból
Kolbrún Kristínardóttir leiðir fjölskylduvæna göngu að Valabóli í landi Helgafells. Valaból er gamall áningarstaður með helli og skemmtilegum klifurtrjám þar sem tekin verður nestispása áður en haldið er til baka. Leiðin er auðveld yfirferðar og alls um 5 km. Gengið verður frá bílastæðinu við Kaldárselsveg.
8. júlí kl. 17 – Plöntutengsla- og söngganga fyrir fjölskyldur
Búi Bjarmar og Hrefna Lind leiða lifandi og skemmtilega fjölskyldugöngu þar stoppað verður á forvitnilegum stöðum í bænum. Við skoðum plöntur og annað spennandi sem verður á vegi okkar. Ganga, náttúra og söngur fléttast saman á skapandi hátt. The walk will depart from Hafnarborg.
15. júlí kl. 20 – Hafnarsvæðið fyrr og nú
Lúðvík Geirsson leiðir göngu um söguslóðir hafnarinnar, þar sem sagt verður frá fyrstu siglingum til Hafnarfjarðar, þróun verslunar og kaupsiglinga, uppbyggingu hafnarmannvirkja, umsvifum og næstu framkvæmdum á hafnarsvæðinu. Gengið verður frá Pakkhúsi Byggðasafnsins.
Hildur Aðalsteinsdóttir leiðir göngu í kringum Ástjörn með viðkomu á Ásfjalli. Þægileg leið með smá fjallgöngu en Ásfall er 128m hátt. Falleg leið með góðu útsýni yfir bæinn okkar. Gangan er 5 km með 139 hæðametrum. Gengið verður frá Haukahúsinu við Ásvelli.
29. júlí kl. 20 – Íþróttabærinn Hafnarfjörður
Björn Pétursson leiðir göngu um miðbæ Hafnarfjarðar. Ljósi verður varpað á íþróttasögu bæjarins undanfarna áratugi. Hafnarfjörður hefur í gegnum tíðina verið kallaður bæði „íþróttabærinn“ og „handboltabærinn.“ Í upphafi göngunnar verður gestum boðið að skoða nýja sýningu í Pakkhúsi Byggðasafnsins sem ber heitið „Handboltabærinn Hafnarfjörður.“ Gengið verður frá Pakkhúsi Byggðasafnsins.
5. ágúst kl. 17 – Samtímavíkingar
Jökull Tandri Ámundason leiðir létta göngu um bæinn. Fjallað verður um víkinga þjóðveldisaldar, heiðinn sið og samtímavíkinga sem eru virkur hluti af bæjarlífi Hafnarfjarðar. Saga, heimspeki og skemmtun haldast í hendur á göngunni. Gengið verður frá Thorsplani.
Harpa Gústavsdóttir leiðir ljúfa kvöldgöngu hringinn í kringum Stórhöfða sunnan við Hvaleyrarvatn. Um er að ræða þægilega gönguleið með fallegu útsýni yfir nágrennið. Gengið verður frá vesturenda Hvaleyrarvatns.
19. ágúst kl. 20 – Núvitundarganga við Hvaleyrarvatn
Bryndís Jóna Jónsdóttir leiðir göngu í nágrenni Hvaleyrarvatns. Við ætlum að upplifa þessa náttúruperlu í gegnum skynfærin okkar. Við pælum saman í því hvað felst í núvitundarfærni, hvernig við getum verið betur til staðar í lífinu okkar, stuðlað að betra jafnvægi og æfum okkur úti í náttúrunni. Gengið verður frá vesturenda Hvaleyrarvatns.
26. ágúst kl. 17 – Hundrað ár í Sléttuhlíð
Sveinn Magnússon leiðir fræðandi göngu um Sléttuhlíð þar sem sagt verður frá sögu svæðisins, fólkinu sem þar bjó og uppbyggingu sumarhúsabyggðarinnar. Sérstaklega verður fjallað um hvernig fyrstu sumarhúsin risu á svæðinu og hvernig frumkvöðlar hófu þar sumardvöl sína. Gengið verður frá Sléttuhlíð (C3).
The programme is published subject to change, but further information about the walks is published in Upcoming events and on the town's social media as each walk draws near.