Komdu út að ganga alla miðvikudaga í sumar 

Boðið verður upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga í sumar. Flestar göngur taka um klukkustund, þátttaka er ókeypis og öll velkomin. Göngurnar eru samstarfsverkefni Bókasafns Hafnarfjarðar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Hafnarborgar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Komdu út að ganga!

3. júní kl. 20- Tónlistin og bæjarlífið

Jónatan Garðarsson leiðir fyrstu göngu sumarsins, um miðbæ Hafnarfjarðar. Við rifjum upp sterka tengingu tónlistar og bæjarlífsins. Fjallað verður um Friðrik Bjarnason, Sönghátíð í Hafnarborg, kirkjutónlist, Vinaminni, unglingaböll, Skiphól, Skútuna, Hjarta Hafnarfjarðar og margt fleira. Gengið verður frá Hafnarborg.

10. júní kl. 17 – Sögugerð og sprell

Hugrún Margrét leiðir hjólastóla- og barnavagnavæna göngu frá Flensborg niður að Óla Run túni. Þátttakendur skapa saman alls konar bullsögur. Niðri á túni verða sögurnar lesnar upp, svo farið í sígilda útileiki og boðið upp á létta hressingu. Gengið verður frá Flensborg.

17. júní – Gleðilegan þjóðhátíðardag!

Fjölbreytt dagskrá um allan bæinn.

24. júní kl. 20 – Slóðir alþýðukonunnar

Valgerður Sigurðardóttir leiðir göngu um söguslóðir alþýðukonunnar í Hafnarfirði. Rýnt verður í líf, aðstæður og sögu kvenna í bænum á fyrri tímum. Gengið verður um vesturbæinn og dvalið við staði sem tengjast daglegu lífi og sögu kvenna í hverfinu. Gestum gefst kostur á að skoða nýja sýningu um alþýðukonuna í skúrnum við Siggubæ áður en gangan hefst. Gengið verður frá Siggubæ, Kirkjuvegi 10.

1.  júlí kl. 17 – Fjölskylduganga í Valaból

Kolbrún Kristínardóttir leiðir fjölskylduvæna göngu að Valabóli í landi Helgafells. Valaból er gamall áningarstaður með helli og skemmtilegum klifurtrjám þar sem tekin verður nestispása áður en haldið er til baka. Leiðin er auðveld yfirferðar og alls um 5 km. Gengið verður frá bílastæðinu við Kaldárselsveg.

8. júlí kl. 17 – Plöntutengsla- og söngganga fyrir fjölskyldur

Búi Bjarmar og Hrefna Lind leiða lifandi og skemmtilega fjölskyldugöngu þar stoppað verður á forvitnilegum stöðum í bænum. Við skoðum plöntur og annað spennandi sem verður á vegi okkar. Ganga, náttúra og söngur fléttast saman á skapandi hátt. Gengið verður frá Hafnarborg.

15. júlí kl. 20 – Hafnarsvæðið fyrr og nú

Lúðvík Geirsson leiðir göngu um söguslóðir hafnarinnar, þar sem sagt verður frá fyrstu siglingum til Hafnarfjarðar, þróun verslunar og kaupsiglinga, uppbyggingu hafnarmannvirkja, umsvifum og næstu framkvæmdum á hafnarsvæðinu. Gengið verður frá Pakkhúsi Byggðasafnsins.

22. júlí kl. 20 – Ástjörn

Hildur Aðalsteinsdóttir leiðir göngu í kringum Ástjörn með viðkomu á Ásfjalli. Þægileg leið með smá fjallgöngu en Ásfall er 128m hátt. Falleg leið með góðu útsýni yfir bæinn okkar. Gangan er 5 km með 139 hæðametrum. Gengið verður frá Haukahúsinu við Ásvelli.

29. júlí kl. 20 – Íþróttabærinn Hafnarfjörður

Björn Pétursson leiðir göngu um miðbæ Hafnarfjarðar. Ljósi verður varpað á íþróttasögu bæjarins undanfarna áratugi. Hafnarfjörður hefur í gegnum tíðina verið kallaður bæði „íþróttabærinn“ og „handboltabærinn.“ Í upphafi göngunnar verður gestum boðið að skoða nýja sýningu í Pakkhúsi Byggðasafnsins sem ber heitið „Handboltabærinn Hafnarfjörður.“ Gengið verður frá Pakkhúsi Byggðasafnsins.

5. ágúst kl. 17 – Samtímavíkingar

Jökull Tandri Ámundason leiðir létta göngu um bæinn. Fjallað verður um víkinga þjóðveldisaldar, heiðinn sið og samtímavíkinga sem eru virkur hluti af bæjarlífi Hafnarfjarðar. Saga, heimspeki og skemmtun haldast í hendur á göngunni. Gengið verður frá Thorsplani.

12. ágúst kl. 20 – Stórhöfði

Harpa Gústavsdóttir leiðir ljúfa kvöldgöngu hringinn í kringum Stórhöfða sunnan við Hvaleyrarvatn. Um er að ræða þægilega gönguleið með fallegu útsýni yfir nágrennið. Gengið verður frá vesturenda Hvaleyrarvatns.

19. ágúst kl. 20 – Núvitundarganga við Hvaleyrarvatn

Bryndís Jóna Jónsdóttir leiðir göngu í nágrenni Hvaleyrarvatns. Við ætlum að upplifa þessa náttúruperlu í gegnum skynfærin okkar. Við pælum saman í því hvað felst í núvitundarfærni, hvernig við getum verið betur til staðar í lífinu okkar, stuðlað að betra jafnvægi og æfum okkur úti í náttúrunni. Gengið verður frá vesturenda Hvaleyrarvatns.

26. ágúst kl. 17 – Hundrað ár í Sléttuhlíð

Sveinn Magnússon leiðir fræðandi göngu um Sléttuhlíð þar sem sagt verður frá sögu svæðisins, fólkinu sem þar bjó og uppbyggingu sumarhúsabyggðarinnar. Sérstaklega verður fjallað um hvernig fyrstu sumarhúsin risu á svæðinu og hvernig frumkvöðlar hófu þar sumardvöl sína. Gengið verður frá Sléttuhlíð (C3).

 

Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar en nánari upplýsingar um göngurnar eru birtar í viðburðir framundan og á samfélagsmiðlum bæjarins þegar nær dregur hverri göngu.

Ábendingagátt