Menningar- og heilsugöngur í Hafnarfirði 2026
Komdu út að ganga alla miðvikudaga í sumar Boðið verður upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga í sumar. Flestar…
26. ágúst kl. 17 – Hundrað ár í Sléttuhlíð
Sveinn Magnússon leiðir fræðandi göngu um Sléttuhlíð þar sem sagt verður frá sögu svæðisins, fólkinu sem þar bjó og uppbyggingu sumarhúsabyggðarinnar. Sérstaklega verður fjallað um hvernig fyrstu sumarhúsin risu á svæðinu og hvernig frumkvöðlar hófu þar sumardvöl sína. Gengið verður frá Sléttuhlíð (C3)
Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.