Menningar- og heilsugöngur í Hafnarfirði 2026
Komdu út að ganga alla miðvikudaga í sumar Boðið verður upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga í sumar. Flestar…
19. ágúst kl. 20 – Núvitundarganga við Hvaleyrarvatn
Bryndís Jóna Jónsdóttir leiðir göngu í nágrenni Hvaleyrarvatns. Við ætlum að upplifa þessa náttúruperlu í gegnum skynfærin okkar. Við pælum saman í því hvað felst í núvitundarfærni, hvernig við getum verið betur til staðar í lífinu okkar, stuðlað að betra jafnvægi og æfum okkur úti í náttúrunni. Gengið verður frá vesturenda Hvaleyrarvatns.
Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.