Menningar- og heilsugöngur í Hafnarfirði 2026
Komdu út að ganga alla miðvikudaga í sumar Boðið verður upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga í sumar. Flestar…
29. júlí kl. 20 – Íþróttabærinn Hafnarfjörður
Björn Pétursson leiðir göngu um miðbæ Hafnarfjarðar. Ljósi verður varpað á íþróttasögu bæjarins undanfarna áratugi. Hafnarfjörður hefur í gegnum tíðina verið kallaður bæði „íþróttabærinn“ og „handboltabærinn.“ Í upphafi göngunnar verður gestum boðið að skoða nýja sýningu í Pakkhúsi Byggðasafnsins sem ber heitið „Handboltabærinn Hafnarfjörður.“ Gengið verður frá Pakkhúsi Byggðasafnsins.
Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.