Menningar- og heilsugöngur í Hafnarfirði 2026
Komdu út að ganga alla miðvikudaga í sumar Boðið verður upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga í sumar. Flestar…
10. júní kl. 17 – Sögugerð og sprell
Hugrún Margrét leiðir hjólastóla- og barnavagnavæna göngu frá Flensborg niður að Óla Run túni. Þátttakendur skapa saman alls konar bullsögur. Niðri á túni verða sögurnar lesnar upp, svo farið í sígilda útileiki og boðið upp á létta hressingu. Gengið verður frá Flensborgarskólanum.
Það vill svo vel til að alþjóðlegur dagur leiks er á fimmtudaginn, 11.júní, daginn eftir gönguna. Það er því kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur að taka forskot á sæluna og góð upphitun fyrir daginn sjálfan að taka þátt í skemmtilegri barnagöngu á miðvikudaginn.
Um alþjóðlegan dag leiks:
Þema alþjóðlega leikdagsins í ár er: „Verndum leik, verndum bernskuna“.
Dagurinn var haldinn í fyrsta skipti árið 2024 og er honum ætlað að vekja athygli á rétti barna til leiks og því mikilvæga hlutverki sem leikur spilar í andlegum og líkamlegum þroska og vellíðan barna. Leikur er frábær leið til þess að styrkja samband milli foreldra og barna, skapa traust og njóta samveru.
Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.