Menningar- og heilsugöngur í Hafnarfirði 2026
Komdu út að ganga alla miðvikudaga í sumar Boðið verður upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga í sumar. Flestar…
1. júlí kl. 17 – Fjölskylduganga í Valaból
Kolbrún Kristínardóttir leiðir fjölskylduvæna göngu að Valabóli í landi Helgafells. Valaból er gamall áningarstaður með helli og skemmtilegum klifurtrjám þar sem tekin verður nestispása áður en haldið er til baka. Leiðin er auðveld yfirferðar og alls um 5 km. Gengið verður frá bílastæðinu við Kaldárselsveg (Helgafell).
Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.