Menningar- og heilsugöngur í Hafnarfirði 2026
Komdu út að ganga alla miðvikudaga í sumar Boðið verður upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga í sumar. Flestar…
12. ágúst kl. 20 – Stórhöfði
Harpa Gústavsdóttir leiðir ljúfa kvöldgöngu hringinn í kringum Stórhöfða sunnan við Hvaleyrarvatn. Um er að ræða þægilega gönguleið með fallegu útsýni yfir nágrennið. Gengið verður frá bílastæðinu við vesturenda Hvaleyrarvatns.
Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.