Menningar- og heilsugöngur í Hafnarfirði 2026
Komdu út að ganga alla miðvikudaga í sumar Boðið verður upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga í sumar. Flestar…
22. júlí kl. 20 – Ástjörn
Hildur Aðalsteinsdóttir leiðir göngu í kringum Ástjörn með viðkomu á Ásfjalli. Þægileg leið með smá fjallgöngu en Ásfall er 128m hátt. Falleg leið með góðu útsýni yfir bæinn okkar. Gangan er 5 km með 139 hæðarmetrum. Gengið verður frá Haukahúsinu við Ásvelli.
Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.