Vorhreinsun – gámar fyrir garðúrgang við alla grunnskóla

Dagana 7. – 10. maí 2026 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ. Þá geta íbúar í Hafnarfirði losað sig við garðúrgang í gám innan allra hverfa við hvern og einn grunnskóla.

Gámarnir verða við skólana frá morgni fimmtudagsins 6. maí og til kl. 17 sunnudaginn 10. maí. Íbúar í Hafnarfirði eru hvattir til að nýta sér þjónustuna eða koma pokunum beint á Sorpu.

Vakin er sérstök athygli á því að Sorpa tekur á móti garðúrgangi endurgjaldslaust. Athugið – gámarnir eru aðeins fyrir garðaúrgang.

Tökum virkan þátt – nýtum þjónustuna

Íbúar eru hvattir til að nota endurunnar umbúðir eða margnota poka við hreinsunina. Bent er á að ekki má setja garðaúrganginn í pokum í gáminn heldur skal losa úr pokunum beint í hann. Tilvalið er einnig, þar sem möguleikinn er fyrir hendi, að safna garðaúrgangi í safnhaug á góðum stað í garðinum og nýta til moltugerðar.

Íbúar í öllum hverfum Hafnarfjarðar eru hvattir til að taka virkan þátt í hreinsuninni og er tilvalið í aðdraganda hreinsunardaga og á meðan á hreinsunardagar standa yfir að taka til hendinni í garðinum, snyrta runna og beð.

Hreinsum, endurnýtum, flokkum og plokkum!

Hvar eru gámarnir?

  • Áslandsskóli
  • Engidalsskóli
  • Hraunvallaskóli
  • Hvaleyrarskóli
  • Lækjarskóli
  • Setbergsskóli
  • Skarðshlíðarskóli
  • Víðistaðaskóli
  • Öldutúnsskóli
Ábendingagátt