Opið hús – Breyting á deiliskipulagi Hvaleyrarholts
Auglýsing um skipulag – Hafnarfjarðarbær Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 25. mars 2026 að auglýsa tillögu að breytingu á…
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 25. mars 2026 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hvaleyrarholts suðausturs vegna Þorlákstúns í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.
Tillagan gerir ráð fyrir íbúðabyggð með 47 íbúðum á 46 lóðum, þar af 45 nýjum íbúðarhúsalóðum fyrir einbýlishús og einni lóð fyrir núverandi hús við Lyngbarð, sem gert er ráð fyrir að verði tvíbýli.
Á kynningartíma frá 24. apríl til 11. júní 2026 má nálgast tillöguna á vef skipulagsgáttar, mál nr. 444/2024.
Athugasemdum og/eða ábendingum skal skila rafrænt í gegnum skipulagsgátt HMS. Ef óskað er frekari upplýsinga um tillögur í kynningu er hægt að senda fyrirspurn á netfangið: skipulag@hafnarfjordur.is.
Opið hús verður þriðjudaginn 28. apríl frá kl. 9:00 til 16:00 að Norðurhellu 2, 221 Hafnarfirði, þar sem hægt verður að kynna sér tillögu að breyttu deiliskipulagi.
Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðar