Kór Öldutúnsskóla í 60 ár – Tónleikar í Hörpu
Kór Öldutúnsskóla fangar 60 ára starfsamæli í Hörpu sunnudaginn 24. maí. Fyrrum og núverandi kórfélagar kórs Öldutúnsskóla koma fram á…
Fyrrum og núverandi kórfélagar kórs Öldutúnsskóla koma fram á þessum stórtónleikumí Hörpu af tilefni afmælisins. Tónleikarnir verða sunnudaginn 24. maí næstkomandi. Meðal annars koma fram Margrét Eir, Hanna Björk Guðjónsdóttir og Ívar Helgson og margir fleiri. Brynhildur Auðbjargardóttir stýrir kórnum. Það hefur hún gert allt frá árinu 2005.
Kór Öldutúnsskóla er elsti starfandi barnakór landsins. Hann var stofnaður 22. nóvember 1965 af Agli Friðleifssyni sem var mikill frumkvöðull í barnakórastarfi landsins, bæði sem kórstjóri og sem kennari annarra tónmenntakennara og kórstjóra.
Segja má að kórinn sé orðinn stofnun í Hafnarfirði, en þúsundir barna og unglinga hafa sungið og starfað með honum frá upphafi. Mörg þeirra hafa síðar gert tónlist að atvinnu.
Tónleikarnir hefjast kl. 16