6. liður úr fundargerð SKB frá 7. apríl sl.$line$Tekið fyrir erindi Áss styrktarfélags um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar, sem Skipulags- og byggingarráð heimilaði. Skipulagstillaga dags. 12.12.14 var auglýst skv. 43. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdatíma er lokið, athugasemdir bárust. $line$Skipulags- og byggingarráð samþykkti að gert verið skuggavarp á lóðinni. Skuggavarp hefur borist. Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs að svörum við innkomnum athugasemdum.$line$Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og gerir að sínum. Skipulags- og byggingarráð samþykkir deiliskipulagið og að meðferð þess verði lokið skv. 42. grein skipulagslaga 123/2010. $line$Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: $line$“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Arnarhraun 50 og að málinu verði lokið skv. 42. grein skipulagslaga 123/2010.“
Bæjarstjórn
í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg
Mætt til fundar
- Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
- Kristinn Andersen aðalmaður
- Unnur Lára Bryde aðalmaður
- Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður
- Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
- Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir forseti
- Einar Birkir Einarsson aðalmaður
- Adda María Jóhannsdóttir aðalmaður
- Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir aðalmaður
- Ófeigur Friðriksson aðalmaður
- Eva Lín Vilhjálmsdóttir varamaður
Auk ofangreindra bæjarfulltrúa sat Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri fundinn.
Mættir voru allir aðalbæjarfulltrúar að undanskildum Gunnari Axel Axelssyni en í hans stað mætti Eva Lín Vilhjálmsdóttir.
Forseti bæjarstjórnar Guðlaug Kristjánsdóttir setti fund og stjórnaði honum.
Áður en gengið var til dagskrá samþykkti bæjarstjórn að taka af dagskrá 1. lið í úrsendri dagskrá, Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, vatnsvernd, heildarendurskoðun.
Ritari
- Jóna Ósk Guðjónsdóttir ritari bæjarráðs
Auk ofangreindra bæjarfulltrúa sat Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri fundinn.
Mættir voru allir aðalbæjarfulltrúar að undanskildum Gunnari Axel Axelssyni en í hans stað mætti Eva Lín Vilhjálmsdóttir.
Forseti bæjarstjórnar Guðlaug Kristjánsdóttir setti fund og stjórnaði honum.
Áður en gengið var til dagskrá samþykkti bæjarstjórn að taka af dagskrá 1. lið í úrsendri dagskrá, Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, vatnsvernd, heildarendurskoðun.
-
Almenn erindi
-
1410024 – Arnarhraun 50, deiliskipulag.
Ólafur Ingi Tómasson tók til máls, einnig Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.
-
1503437 – Iðnskólinn í Hafnarfirði og Tækniskólinn, sameining
1. liður úr fundargerð BÆJH frá 13. apríl sl.$line$Tekið fyrir að nýju.$line$Ársæll Guðmundsson fulltrúi mennta- og menningarmálaráðuneytis mætti á fundinn og gerði grein fyrir málinu.$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í bæjarstjórn.$line$
Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi ályktun:$line$“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar lýsir yfir áhyggjum af framtíð Iðnskólans í Hafnarfirði í ljósi þeirra viðræðna sem nú eru farnar af stað um hugsanlega sameiningu við Tækniskólann. Iðnskólinn hefur mikilvægu hlutverki að gegna í skólasamfélaginu í Hafnarfirði og þjónar ekki einungis þeim fjölda hafnfirskra ungmenna sem þar stundar nám heldur einnig nemendum annars staðar að af höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar leggur þunga áherslu á mikilvægi fjölbreytts framhaldsnáms, og þá ekki síst iðnnáms, í bæjarfélaginu og óskar eftir upplýsingum og samráði um framtíð Iðnskólans í Hafnarfirði. Bæjarstjórn leggur áherslu á að starfsemi Iðnskólans í Hafnarfirði verði áfram í bænum.“$line$$line$Þá tók Adda María Jóhannsdóttir einnig til máls.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum framkomna ályktun.
-
1502214 – Markaðsstofa Hafnarfjarðar
3. liður úr fundargerð BÆJH frá 13. apríl sl.$line$Tekin til umfjöllunar tillaga um Markaðsstofu Hafnarfjarðar. $line$“Bæjarráð styður hugmynd undirbúningshóps vegna stofnunar Markaðsstofu Hafnarfjarðar, sem settur var á laggirnar í framhaldi opins fundar um málið í Hafnarborg 17. mars sl. $line$Í þeim hugmyndum er m.a. gert er ráð fyrir undirbúningsáfanga til 6 mánaða, þar sem starfsemin verður mótuð, aflað verður þátttakenda að verkefninu og fyrstu verkefnum ýtt úr vör. Fyrir árslok verði Markaðsstofan formlega stofnuð á grunni undirbúningsvinnunnar. $line$Bæjarstjóra er falið að vinna með hópnum að undirbúningsáfanganum og bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra geri tillögu hvernig Hafnarfjarðarbær geti veitt verkefninu stuðning með fjárframlagi fyrir verkefnisstjóra og starfsaðstöðu meðan á undirbúningsáfanganum stendur. $line$Bæjarráð verði áfram upplýst um framvindu verkefnisins.“$line$
Kristinn Andersen tók til máls.
-
1502215 – Kosningaréttur kvenna, 100 ára afmæli
Forseti gerði grein fyrir málinu.
Guðlaug Kristjánsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu:$line$“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar fagnar þeirri fjölbreyttu afmælisdagskrá í tilefni 100 ára kosningaréttar kvenna sem nú liggur fyrir, dagskrá sem leggur áherslu á lýðræðisþátttöku og jafnréttismál í sinni víðustu mynd. $line$Bæjarstjórn samþykkir jafnframt að heiðra minningu og sögu þeirra kvenna sem ruddu brautina með því að setja upp minningarstétt í lautinni við við Siggubæ.“ $line$$line$Tók 1. varaforseti Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir við stjórn fundarins á meðan. Guðlaug Kristjánsdóttir tók síðan við stjórn fundarins að nýju.$line$$line$Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók síðan til máls.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.$line$
-
1504199 – Hinseiginfræðsla í grunnskólum Hafnarfjarðarbæjar
Lögð fram eftirfarandi tillaga:$line$“Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til við bæjarstjórn að farið verði í átak í eflingu hinseginfræðslu og -ráðgjöf í grunnskólum Hafnarfjarðar. Hafnarfjarðarbær leitist við að gera samstarfssamning við Samtökin „78 um þróun námsefnis fyrir öll stig grunnskóla, frá 1. til 10. bekkjar og sérfræðingar Samtakanna haldi námskeið fyrir alla starfsmenn grunnskóla Hafnarfjarðar. Nemendum í unglingadeildum grunnskóla verði sömuleiðis gert kleift að sækja einstaklingsráðgjöf hjá sérfræðingum Samtakanna án endurgjalds.“
Eva Lín Vilhjálmsdóttir tók til máls, þá Rósa Guðbjartsdóttir sem lagði til að fyrirliggjandi tillögun yrði vísað til fræðsluráðs.$line$$line$Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók síðan til máls, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari við ræðu Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari, Helga Ingólfsdóttir kom einnig að andsvari við upphaflegri ræðu Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari, Kristinn Andersen kom einnig að andsvari, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari, Kristinn Andersen kom að andsvari öðru sinni, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. $line$Guðlaug Kristjánsdóttir kom einnig að andsvari við upphaflegri ræðu Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur og tók 2. varaforseti við stjórn fundarins á meðan, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari.$line$$line$Guðlaug Kristjánsdóttir tók við stjórn fundarins að nýju.$line$$line$Adda María Jóhannsdóttir tók þessu næst til máls, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari, Adda María Jóhannsdóttir svaraði andsvari.$line$$line$Guðlaug Kristjánsdóttir tók þá til máls og tók 1. varaforseti Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir við stjórn fundarins á meðan, Eva Lín Vilhjálmsdóttir kom að andsvari við ræðu Guðlaug Kristjánsdóttir.$line$$line$Helga Ingólfsdóttir tók síðan til máls, Adda María Jóhannsdóttir kom að andsvari.$line$$line$Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók einnig til máls, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari.$line$$line$Gert var stutt fundarhlé.$line$$line$Forseti lagði fram svohljóðandi tillögu að afgreiðslu:$line$“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar tekur jákvætt í málið og vísar tillögunni til frekari útfærslu í fræðluráði.“$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti tillögu forseta með 11 samhljóða atkvæðum.
-
1502217 – Kirkjuvellir 12, úthlutun
Liður nr. 6 úr fundargerð BÆJH frá 13. apríl sl.$line$Umsóknir um lóðina Kirkjuvellir 12 teknar til afgreiðslu. $line$Lögmaður fjölskylduþjónustu mætti á fundinn og dró úr gildum umsóknum.$line$ $line$Bæjarráð vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:$line$“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að úthluta Fjarðarmótum ehf lóðinni Kirkjuvellir 12 í samræmi við fyrirliggjandi umsókn og nánari skilmála skipulags- og byggingarfulltrúa.“$line$ $line$
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls, Ólafur Ingi Tómasson kom að andsvari, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari, Ólafur Ingi Tómasson kom að andsvari öðru sinni. $line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.$line$$line$
-
1504198 – Bæjarstjórn, lausn frá störfum
Lagt fram erindi Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur dags. 15. apríl 2015 þar sem sem hún óskar eftir lausn frá skyldum sem kjörinn bæjarfulltrúi frá og með 30. apríl til loka kjörtímabilsins.
Ekki voru gerðar athugasemdir við framangreint erindi og skoðast það samþykkt. $line$$line$Forseti þakkaði Guðrúnu Ágústu Guðmundsdóttur fyrir samstarfið og störf hennar í þágu bæjarstjórnar.
-
1504118 – Ársreikningur bæjarsjóðs Hafnarfjarðar og fyrirtækja hans 2014
2. liður úr fundargerð BÆJH frá 13. apríl sl.$line$Lögð fram drög að ársreikngur bæjarsjóðs Hafnarfjarðar og fyrirtækja hans árið 2014.$line$Fjármálastjóri mætti á fundii og fór yfir ársreikninginn.$line$Bæjarráð vísar fyrirliggjandi drögum að ársreikningi til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson tók til máls, þá Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, Rósa Guðbjartsdóttir og Adda María Jóhannsóttir.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum að vísa ársreikningnum til síðari umræðu.
-
1501023 – Fundargerðir 2015, til kynningar í bæjarstjórn
Fundargerð fjölskylduráðs frá 27. mars sl.$line$a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 16. mars sl.$line$Fundargerð fræðsluráðs frá 23. mars sl.$line$Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 25. mars sl.$line$a. Fundargerð Strætó bs. frá 13. mars sl.$line$Fundargerð bæjarráðs frá 26. mars sl.$line$a. Fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 19. febr. sl.$line$b. Fundargerðir menningar- og ferðamálanefndar frá 13. og 18. mars sl.$line$c. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 23. mars sl.$line$Fundargerð bæjarráðs frá 13. apríl sl.$line$Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 24. mars sl.$line$Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 7. apríl sl.
Adda María Jóhannsdóttir kvaddi sér hljóð vegna 8. liðar fundargerðar fræðsluráðs frá 23.3., Fækkun barna á leikskólaaldri.$line$$line$Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kvaddi sér hljóð vegna 7. liðar fundargerðar bæjarráðs frá 26.3. sl., Málefni Hafnarfjarðarhafnar, Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri kom að andsvari.$line$$line$Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs.$line$$line$
-