Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Skipulags- og byggingarráð
Fundarsalurinn Hamarinn, Norðurhellu 2 (1. hæð)
Mætt til fundar
- Skarphéðinn Orri Björnsson formaður
- Árni Rúnar Árnason varaformaður
- Lovísa Björg Traustadóttir aðalmaður
- Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður
- Sigurjón Ingvason áheyrnarfulltrúi
- Ágúst Arnar Þráinsson varamaður
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Berglind Guðmundsdóttir arkitekt, Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.
Ritari
- Anna María Elíasdóttir skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Berglind Guðmundsdóttir arkitekt, Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.
-
Almenn erindi
-
2212393 – Ásvellir 1, knatthús og fleira, framkvæmdir, mál nr. 146 árið 2022, kæra
Lagt fram.
-
2206136 – Straumsvík breyting á aðalskipulagi 2013-2025
Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna aðstöðu og aðkomu að Straumsvíkurhöfn og umferðaskipulag.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir breytingu á aðlaskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna aðstöðu og aðkomu að Straumsvíkurhöfn auk umferðaskipulags með vísan til 30.gr. skipulagslaga. Erindinu er jafnframt vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
-
2203335 – Reykjavíkurvegur 50, umferðaröryggi, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram bókun fræðsluráðs frá 11. janúar sl. vegna beiðni Meginmál ehf. um breytingu á deiliskipulagi.
Lagt fram og skipulagsfulltrúa falið að vinna áfram að málinu.
-
2212370 – Undirhlíðar náma, deiliskipulag
Lögð fram að nýju umsókn Grafa og Grjót ehf. um leyfi til efnistöku bögglabergs úr Undirhlíðum.
Lagt fram og óskað eftir áliti bæjarlögmanns vegna matsskyldu.
-
2207031 – Hringhamar 27, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi reitar 26B. Tillagan gerir ráð fyrir tveimur 5 hæða fjölbýlishúsum með allt að 48 íbúðum ásamt bílakjallara og smáhýsi á lóð. Á hluta jarðhæðar byggingar A er gert ráð fyrir verslun og/eða þjónustu sem fellur vel að íbúðabyggð.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að deiliskipulag reitar 26B og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
2301280 – Völuskarð 2, deiliskipulagsbreyting
þann 10.01.2023 sækir Kristinn Ragnarsson fyrir hönd lóðarhafa um að breyta deiliskipulagi. Breytingin snýr að fjölgun eigna, breytingu á byggingarreit, byggingarlínu, þak verði einhalla og/eða flatt og hámarkshæð 5,2m.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að grenndarkynna erindið.
-
2209696 – Hjallahraun 2, 4 og 4a, breyting á deiliskipulagi
Skipulags- og byggingarráð samþykkti 3.11.2022 að grenndarkynna breytingu á deiliskipulagi Hrauns vesturs vegna sameiningu lóða og tilfærslu á byggingarreit að Hjallahrauni 2, 4 og 4a. Erindið var grenndarkynnt tímabilið 10.11.-12.12.2022. Athugasemd barst. Lagt fram svar skipulagsfulltrúa við framkominni athugasemd.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör skipulagsfulltrúa og samþykkir breytingu á deiliskipulagi Hrauns vesturs vegna sameininga lóða og tilfærslu á byggingarreit, framkvæmdum skal vera lokið innan 5 ára skv. 6. mgr. 37. greinar skipulagslaga og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
2212077 – Hádegisskarð 22, breyting á deiliskipulagi
Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 15. desember sl. var samþykkt að grenndarkynna, í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, umsókn eiganda við Hádegisskarð 22. Breytingin felst í að íbúðum er fjölgað úr tveimur í þrjár, gert er ráð fyrir að minnsta kosti einu bílastæði á íbúð. Byggingarmagn er það sama. Þakgerð einhalla með hæsta punkt til suðurs og/eða flatt þak. Erindið var grenndarkynnt. Frestur til að skila athugasemdum var til 18. janúar 2023. Athugasemdir bárust.
Skipulagsfulltrúa falið að taka saman svör við framkomnum athugasemdum.
-
2212076 – Drangsskarð 13, breyting á deiliskipulagi
Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 15. desember sl. var samþykkt að grenndarkynna, í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, umsókn eiganda við Drangsskarð 13. Breytingin felst í að íbúðum er fjölgað úr tveimur í þrjár, gert er ráð fyrir að minnsta kosti einu bílastæði á íbúð. Byggingarmagn er það sama. Þakgerð einhalla með hæsta punkt til suðurs og/eða flatt þak. Erindið var grenndarkynnt. Frestur til að skila athugasemdum var til 18. janúar 2023. Athugasemdir bárust.
Skipulagsfulltrúa falið að taka saman svör við framkomnum athugasemdum.
-
2202571 – Vikingastræti 2, breyting á deiliskipulag
Lögð fram til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar Víkingastræti 2.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að deiliskipulag Víkingastrætis 2 og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
1706356 – Miðbær, deiliskipulag, endurskoðun
Tekið til umræðu.
Tekið til umræðu.
-
2206043 – Snókalönd, nýtt deiliskipulag
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 07.01.2022 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Snókalönd við Bláfjallaveg. Skipulagið afmarkast af gamalli hraunnámu sem í dag er skilgreind sem afþreyingar- og ferðamannasvæði í aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025.
Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir einni lóð þar sem gert er ráð fyrir aðkomu, bílastæðum og byggingarreit þar sem gert er ráð fyrir byggingum tengdum norðurljósaskoðunum. Tillagan var auglýst 14.12.2022-25.1.2023. Athugasemdir bárust. Lögð fram umsögn vegna framkominna athugasemda.Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn vegna framkominna athugasemda og vísar uppfærðum gögnum til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
10022261 – Skilti á bæjarlandi
Lögð fram til samþykktar endurskoðuð samþykkt um skilti á bæjarlandi.
Lagt fram.
Fundargerðir
-
2209120 – Hjólastefna Hafnarfjarðar, starfshópur
Lögð fram fundargerð 7. fundar starfshóps.
-
2301009F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingafulltrúa - 911
Lögð fram fundargerð 911. fundar.
-
2301017F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingafulltrúa - 912
Lögð fram fundargerð 912. fundar.
-