Sundballettinn Eilífðin verður með opinn tíma fyrir okkur öll í Sundhöll Hafnarfjarðar í lok árs.
Systurnar Margrét Erla Maack og Vigdís Perla leiða þriðjudaginn 30. desember þennan opna tíma kl. 18. Öllum velkomið að koma og taka þátt í þessari einskæru gleði og hreyfingu. Þetta er frábært tækifæri til hláturs og sleppa aðeins fram af sér beislinu í góðum félagsskap.
Hvað þarf: Taka með sundfötin og mæta
Hvað kostar: Gjaldfrálst í ballettinn
Hver mega koma: Öll sem eru synd og ná til botns í grynnri enda laugarinnar