Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Nýverið var ný tilkynningasíða Ábendingalínunnar opnuð. Allir þeir sem starfa með og fyrir börn, eru beðnir um að kynna Ábendingalínuna fyrir börnum í sínu umhverfi. Jafnframt vonast Barnaheill eftir því að allt samfélagið nýti Ábendingalínuna til að tilkynna um ofbeldi, tælingu, áreitni eða hvaðeina annað sem er ólöglegt eða óviðeigandi á neti og varðar börn.
Nýverið var ný tilkynningasíða Ábendingalínunnar opnuð á vefslóðinni barnaheill.is/abendingalina . Allir þeir sem starfa með og fyrir börn, eru beðnir um að kynna Ábendingalínuna fyrir börnum í sínu umhverfi. Jafnframt vonast Barnaheill eftir því að allt samfélagið nýti Ábendingalínuna til að tilkynna um ofbeldi, tælingu, áreitni eða hvaðeina annað sem er ólöglegt eða óviðeigandi á neti og varðar börn.
Ábendingalínan er ætluð bæði börnum og fullorðnum. Hún er aldursskipt fyrir 14 ára og yngri, 15-17 ára og svo 18 ára og eldri. Á Alþjóðlega netöryggisdeginum, þann 11. febrúar síðastliðinn var nýrri kynningarherferð Barnaheilla á Ábendingalínunni ýtt úr vör. Hin nýja kynningarherferð byggir á slagorðunum „þú getur hjálpað okkur að eyða því versta“.Til Ábendingalínunnar er hægt að tilkynna um ólöglegt og óviðeigandi efni sem varðar börn á netinu, svo sem ofbeldi gegn börnum, kynferðislegt eða annars konar ofbeldi, tælingu, áreitni, hatursorðræðu, einelti og fleira. Ábendingalína Barnaheilla sem rekin er í samstarfi við Ríkislögreglustjóra, er hluti af SAFT verkefninu, ásamt Heimili og skóla og Rauða krossinum sem rekur 1717, hjálparsímann. Verkefnið nýtur styrkja frá Evrópusambandinu og fleirum.
Ábendingalínan er þátttakandi í alþjóðlegu neti ábendingalína um allan heim í gegnum regnhlífasamtökin Inhope en á hverju ári renna yfir hundrað þúsund tilkynningar í gegnum samstarfsnetið sem varða hundruðir þúsunda mynda og myndbanda sem leiða til þess að kynferðisofbeldi gegn börnum er fjarlægt af netinu og börnum er komið til bjargar. Tækni fleygir fram á þessu sviði og nú orðið eru meiri líkur á því en áður að hægt sé að fjarlægja myndefni af netinu. Þó er við ramman reip að draga því vandinn er gríðarlegur þegar kemur að dreifingu á kynferðisofbeldi gegn börnum á neti. Það er því afar mikilvægt að tilkynnt sé um myndefni sem almenningur rekst á sem inniheldur slíkt efni. Það er ólöglegt að skoða eða dreifa slíku efni en mikilvægt að tilkynna til Ábendingalínu ef vart verður við það.
https://www.youtube.com/watch?v=lJflW8qdNjw
Hér að ofan má sjá auglýsingu um Ábendingalínuna sem hægt er að sýna börnum: Þú getur hjálpað okkur að eyða því versta. Gott er að eiga gott samtal um netöryggi og jákvæða sjálfsmynd við það tækifæri.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Jónsdóttir, verkefnastjóri Ábendingalínunnar, í s. 6981976 eða í gegnum thora@barnaheill.is.
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…