Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Í vikunni var settur upp ærslabelgur á Víðistaðatúni og var hann opnaður formlega í dag. Ærslabelgir sem þessir hafa verið settir upp víða um land og notið mikilla vinsælda. Mikið fjör hefur verið á Víðistaðatúni síðan belgurinn var settur upp og ljóst að hann er góð viðbót við þau tæki og þá afþreyingu sem fyrir er á svæðinu.
Í vikunni var settur upp ærslabelgur á Víðistaðatúni og var hann opnaður formlega í dag. Það þótti mjög viðeigandi að fá þá nemendur, tvær stúlkur í Hvaleyrarskóla og samnemendur þeirra sem sendu inn formlega beiðni um uppsetningu á belg til bæjarstjóra, til að taka fyrsta formlega hoppið á belgnum. Ærslabelgir sem þessir hafa verið settir upp víða um land og notið mikilla vinsælda. Mikið fjör hefur verið á Víðistaðatúni síðan belgurinn var settur upp og ljóst að hann er góð viðbót við þau tæki og þá afþreyingu sem fyrir er á svæðinu.
Í árslok 2017 settu þær Vala Björk og Hafdís Ólöf, þá nemendur í 7. bekk í Hvaleyrarskóla, sig í samband við bæjarstjóra Hafnarfjarðarbæjar og lögðu til þá hugmynd að ærslabelgur yrði settur upp á Víðistaðatúni. Stúlkurnar færðu góð rök fyrir því að Heilsubærinn Hafnarfjörður myndi eignast slíkan belg enda um að ræða góða afþreyingu fyrir börn og unglinga og til þess fallinn að ýta undir ánægjulegar samverustundir með fjölskyldu og vinum. Hugmyndin þótti mjög áhugaverð en þar sem um nýjung á leiktækjamarkaði var að ræða þótti ástæða til að rýna hugmyndina vel og þar með öll öryggisatriði. Fræðsluráð Hafnarfjarðarbæjar samþykkti svo á fundi sínum 9. maí sl. að fjárfesta í ærslabelg og tók undir bókun umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 8. maí um að fyrsti ærslabelgurinn sem fjárfest yrði í yrði staðsettur á Víðistaðatúni. Þykir leiktækið falla vel að þeim hugmyndum sem uppi hafa verið með uppbyggingu á Víðistaðatúni.
Ærslabelgur er loftknúin niðurgrafin hoppudýna sem er jafnhá landslaginu og er hugsaður fyrir fólk á öllum aldri sem hefur áhuga á að hoppa og leika sér. Allir „hopparar“ eru vinsamlegast beðnir um að skemmta sér kostulega en fara á sama tíma varlega og eftir þeim umgengnisreglum sem settar hafa verið upp við belginn. Belgurinn er tímastilltur og verður loft í honum frá kl. 9 – 22 alla daga í sumar.
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…