Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Árshlutareikningur Hafnarfjarðarbæjar, fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2023, var lagður fyrir á fundi bæjarráðs 24. október sl. Afkoma A- og B- hluta er 208 m.kr. betri en áætlanir gerðu ráð fyrir og afkoma A-hluta 388 m.kr. betri. Veltufé frá rekstri nam 1.315 m.kr. í lok júní sem er umtalsvert umfram áætlun.
Rekstrarniðurstaða samstæðu Hafnarfjarðarbæjar, A- og B-hluta, var neikvæð um 499 m.kr. á fyrri helmingi ársins 2023 en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 707 m.kr. neikvæðri niðurstöðu. Afkoman er því 208 m.kr. betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Rekstur samstæðunnar fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var jákvæður um 2.215 m.kr. sem er 830 m.kr. umfram áætlun. Veltufé frá rekstri nam 1.315 m.kr. í lok júní sem er umtalsvert umfram áætlun.
Rekstrarniðurstaða A-hluta Hafnarfjarðarbæjar var neikvæð um 603 m.kr. fyrstu sex mánuðina en áætlun gerði ráð fyrir 991 m.kr. neikvæðri rekstrarniðurstöðu. Afkoman er því 388 m.kr. betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Helstu frávik frá áætlun hjá A-hluta eru í fjármagnsliðum sem eru 315 m.kr. yfir áætlun á tímabilinu en á móti kemur að tekjur eru umfram áætlun. Rekstur A-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var jákvæður um 1.408 m.kr. sem er 752 m.kr. umfram áætlun.
Heildareignir A- og B-hluta samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2023 námu 86,1 ma.kr. og skuldir og skuldbindingar 58,4 mö.kr. Eigið fé var 27,7 ma.kr. og eiginfjárhlutfall samstæðunnar 32,2%.
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri: „Rekstrarafkoma á fyrri helmingi ársins er ásættanleg í núverandi efnahagsumhverfi verðbólgu og hárra vaxta. Afkoman er í raun umtalsvert betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Nú kemur sér vel að lögð hefur verið áhersla á aðhald í rekstri og lækkun skuldahlutfalla undanfarin ár. Á næstu misserum bíða sveitarfélaganna miklar rekstraráskoranir til að standa undir lögbundinni þjónustu. Við gerð fjárhagsáætlunar komandi árs munum við áfram leggja áherslu á gætni í útgjöldum og rekstri Hafnarfjarðarbæjar en gæta þess um leið að tryggja íbúum trausta þjónustu.“
Árshlutareikningur Hafnarfjarðarbæjar, fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2023, var lagður fyrir á fundi bæjarráðs í gær þriðjudaginn 24. október.
Árshlutareikningur Hafnarfjarðarbæjar
„Þetta hefur verið draumur hjá mér síðan ég var krakki,“ segir Knútur Hreiðarsson matreiðslumaður sem hefur ásamt eigendum Sydhavn blásið…
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.