Áframhaldandi samningur við Gaflaraleikhúsið

Fréttir

Hafnarfjarðarbær og Gaflaraleikhúsið hafa gert með sér áframhaldandi samning til þriggja ára um rekstur atvinnuleikhúss í Hafnarfirði með það að markmiði að efla menningarlíf í Hafnarfirði og glæða áhuga Hafnfirðinga á leiklist og öðrum þeim listgreinum sem leiksviði tengjast.

Sérstök áhersla á leiklistarstarfsemi fyrir ungt fólk og unga áhorfendur

Hafnarfjarðarbær og Gaflaraleikhúsið hafa gert með sér áframhaldandi samning til þriggja ára um rekstur atvinnuleikhúss í Hafnarfirði með það að markmiði að efla menningarlíf í Hafnarfirði og glæða áhuga Hafnfirðinga á leiklist og öðrum þeim listgreinum sem leiksviði tengjast.

Leikverk Gaflaraleikhúss hafa vakið verðskuldaða athygli

Gaflaraleikhúsið tekur að sér að halda úti fjölbreyttri leiklistarstarfsemi á vegum leikhópsins og gangast fyrir reglulegum leiksýningum og er að auki heimilt að leita samstarfs við áhuga- og atvinnuleikhópa. Gaflaraleikhúsið leggur sérstaka áherslu á leiklistarstarfsemi fyrir ungt fólk og unga áhorfendur í starfsemi sinni en leikhúsið hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á kennslu í leiklist fyrir börn og ungmenni með samstarfi við grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar og með sjálfstæðum námskeiðum.

Gaflaraleikhusid2

Gaflaraleikhúsið var stofnað árið 2010 og hefur aðsetur við Víkingastræti í Hafnarfirði. Framlag Hafnarfjarðarbæjar er með beinu styrkframlagi. Í Gaflaraleikhúsinu hafa síðustu árin verið sýnd fjöldi nýrra íslenskra leikverka sem hafa vakið verðskuldaða athygli og gert það að verkum að ungir áhorfendur flykkjast nú í Gaflaraleikhúsið í þúsundatali en auk þessa hafa danshópar, erlendir leikhópar og skólaleikhús fengið inn í húsinu með fjölda sýninga.

Á myndunum hér fyrir ofan má sjá þau Lárus Vilhjálmsson
framkvæmdastjóra Gaflaraleikhússins, Björk Jakobsdóttur og Gunnar Helgason ásamt Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra og
Guðbjörgu Oddnýju Jónasdóttur formanni menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar. 

Ábendingagátt