Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Þessa dagana stendur yfir VINAVIKA í grunnskólum Hafnarfjarðar sem hver og einn grunnskóli útfærir með sínum einstaka hætti. Vinavika er tilkomin vegna Dags eineltis þann 8. nóvember ár hvert sem helgaður er baráttunni gegn einelti.
Þessa dagana stendur yfir VINAVIKA í grunnskólum Hafnarfjarðar sem hver og einn grunnskóli útfærir með sínum einstaka hætti. Vinavika er tilkomin vegna Dags gegn einelti þann 8. nóvember ár hvert sem helgaður er baráttunni gegn einelti. Grunnskólar í Hafnarfirði vildu strax taka baráttuna skrefinu lengra og leggja sérstaka áherslu á vináttu í heila viku í aðdraganda þessa dags sem haldinn var hátíðlegur í fyrsta skipti árið 2011.
Í vinaviku er samkennd og vinátta við völd í skólastarfinu. Í tilefni vinaviku var t.a.m. blásið til vinaleika í Öldutúnsskóla og Hvaleyrarskóla. Þannig er öllum nemendum skipt í hópa, þvert á árganga og aldur og fara hóparnir saman á stöðvar með fjölbreyttum verkefnum. Þannig er m.a. boðið upp á nudd, slökun, ólsen ólsen, lúdó og yatzy, kennslu á klukku og að reima skó, farið í snú snú og Tetris, fundin samheiti á íslensku og dönsku, gerð laufblöð á vinatré og margt margt fleira. Vinaleikarnir eru hugsaðir sem góð og skemmtileg tilbreyting í skólastarfið sem gerir nemendur kleift að kynnast hver öðrum utan bekkjarins og milli árganga. Vinaleikarnir gagna líka út á það að sýna að allir hafa sínar sterku hliðar og eiga að fá tækifæri til að njóta á sínum eigin forsendum. Elstu nemendurnir hugsa vel um þá yngstu í sínum hópi, leiðbeina þeim og sýna þeim virðingu, umhyggju og kærleik. Plúsinn er að starfsfólk fær í gegnum vinaleika einnig tækifæri til að kynnast öllum nemendum skólans.
Í Víðistaðaskóla er hefð fyrir því að byrja vinavikuna á því að syngja saman lög sem tengjast vináttunni. Vinabekkjaverkefni skólans er sett af stað í vinaviku en þá sækja eldri vinir yngri vini til að fara saman í sönginn á sal. Í vinaviku er lögð áhersla á að fjalla um og vinna með vináttuna og góð samskipti, fjallað er um einelti og farið yfir eineltishringinn. Í Hvaleyrarskóla eru fjölgreindarleikar (vinaleikar) haldnir þessa vikuna.
8. nóvember ár hvert er helgaður baráttunni gegn einelti í skólum. Á þessum degi eru jákvæð samskipti í fyrirrúmi og er skólasamfélagið hvatt til að taka höndum saman gegn einelti. Í einhverjum skólum klæðast nemendur og starfsfólk grænum lit til vitundarvakningar um baráttuna gegn einelti.
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…