Allar stofnanir bæjarins lokaðar frá hádegi þann 19.júní
Stofnanir bæjarins verða lokaðar frá hádegi 19.júní en öll neyðarþjónusta verður til staðar. Öllum leikskólum bæjarins verður lokað frá hádegi þennan dag. Hafnarfjarðarbær vill með þessu hvetja starfsmenn bæjarins til að taka þátt í hátíðarhöldunum.
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 24. apríl að starfsmönnum Hafnarfjarðarbæjar verði gefið frí frá hádegi 19. júní 2015 í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar íslenskra kvenna.
Skipulögð hátíðahöld eru áformuð viða um land þennan dag og með því að gefa frí er starfsmönnum Hafnarfjarðarbæjar gefinn kostur á að taka þátt í þeim.
Stofnanir bæjarins verða lokaðar frá hádegi 19.júní en öll neyðarþjónusta verður til staðar. Öllum leikskólum bæjarins verður lokað frá hádegi þennan dag.
Hafnarfjarðarbær vill með þessu hvetja starfsmenn bæjarins til að taka þátt í hátíðarhöldunum.