Allt að 7 daga töf á sorphirðu

Fréttir

Veður og færð halda áfram að hafa áhrif á meðal annars stöðu sorphirðumála í sveitarfélaginu. Eins og staðan er í dag er allt að 7 daga töf á sorphirðu. Íbúum er bent á að hægt er að sjá dag tæmingar á vef bæjarins. Athugið að bæta allt að 7 dögum við uppgefinn tæmingardag.

Veður og færð halda áfram að hafa áhrif á meðal annars stöðu sorphirðumála í sveitarfélaginu. Eins og staðan er í dag er allt að 7 daga töf á sorphirðu. Íbúum er bent á að hægt er að sjá dag tæmingar á öll heimilisföng í Hafnarfirði í sorphirðudagatali á vef bæjarins. Athugið að bæta allt að 7 dögum við uppgefinn tæmingardag.

Fyrirfram þakkir fyrir ykkar þátttöku

Íbúar eru hvattir til að leggja sitt að mörkum við að tryggja sorphirðu frá sínu húsi með því moka vel frá sorpgeymslum að lóðarmörkum og passa að tunnur séu ekki frosnar við jörðu. Ef aðgengi að tunnunum er ekki greiðfært eru tunnurnar ekki tæmdar fyrr en við næstu losun. Grátunnan / orkutunnan er losuð á 14 daga fresti og blátunnan á 28 daga fresti.

Upplýsingar um sorphirðu eftir hverfum er að finna HÉR

Ábendingagátt