Almannavarnarnefnd fundaði með sóttvarnarlækni

Fréttir

Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins kom saman í lok síðustu viku að beiðni sóttvarnalæknis. Tilefni fundarins var samræming og skipulag viðbragða við kórónaveirunni (2019-nCoV). Sóttvarnalæknir fór yfir hlutverk höfuðborgarsvæðisins í viðbrögðum ef og þegar veiran kemur upp á Íslandi. Neyðarstjórn Hafnarfjarðarbæjar hefur þegar hafið undirbúning að viðbrögðum til að vera við öllu búin. 

Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins fundaði með sóttvarnarlækni

Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins kom saman í lok síðustu viku að beiðni sóttvarnalæknis. Tilefni fundarins var samræming og skipulag viðbragða við kórónaveirunni (2019-nCoV). Sóttvarnalæknir fór yfir hlutverk höfuðborgarsvæðisins í viðbrögðum ef og þegar veiran kemur upp á Íslandi.

Sóttvarnalæknir og Embætti landlæknis hafa lýst yfir óvissustigi vegna kórónaveirunnar. Neyðarstjórn Hafnarfjarðarbæjar hefur þegar hafið undirbúning að viðbrögðum vegna veirunnar til að vera við öllu búin. Felst undirbúningurinn  m.a. í því að fara yfir áætlanir og ferla m.a til að tryggja órofna þjónustu ef grípa þarf til einhverra aðgerða. Stjórnendur Hafnarfjarðarbæjar hafa þegar verið upplýstir um nauðsynlegar forvarnaraðgerðir og aðgerðir.

Sóttvarnalæknir og Almannavarnir ríkisins munu upplýsa almenning jafnóðum um þróun mála en þessir aðilar hafa yfirumsjón með viðbrögðum vegna veirunnar. Allar nauðsynlegar upplýsingar um kórónaveiruna (2019-nCoV) og viðbrögð við henni má finna inn á vefsíðu Landlæknis www.landlaeknir.is

Upplýsingar um neyðarstjórn Hafnarfjarðarbæjar er að finna hér. Á myndinni hér fyrir ofan má sjá hluta neyðarstjórnar sveitarfélagsins ásamt þeim Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur og Jón Viðari Matthíassyni frá Almannavörnum og Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. 

Ábendingagátt