Almennar skuldir lækka en lífeyrisskuldbindingar hækka

Fréttir

Vegna fréttar RÚV í dag um skuldir sveitarfélaga er rétt að það komi fram að í ársbyrjun 2016 námu heildarskuldir A-hluta 34
milljörðum króna. Þar af voru skuldir vegna lífeyrisskuldbindingar um 9,8
milljarðar króna.

Í árslok 2018 er gert ráð fyrir að heildarskuldir A-hluta
nemi um 37 milljörðum króna. Þar af eru skuldir vegna lífeyrisskuldbindingar
12,5 milljarðar króna og auk þess skuld vegna uppgjörs við lífeyrissjóð Brú
vegna samkomulags ríkisins um 1,8 milljarðar króna eða alls um 14,3 milljarðar
króna. 

Skuldir vegna lífeyrisskuldbindingar hafa því aukist um 4,5
milljarða króna á tímabilinu á meðan heildarskuldir hafa aukist um 2,8 milljarða króna sem þýðir að aðrar skuldir hafa
því lækkað um 1,7 milljarða króna.

Frétt RÚV er hér 

Ábendingagátt