Alþingiskosningar 30. nóvember 2024  

Fréttir

Kjörfundur í Hafnarfirði vegna alþingiskosninganna laugardaginn 30. nóvember 2024 hefst kl. 9 og lýkur kl. 22. Kjörstaðir í Hafnarfirði eru Lækjarskóli, Sólvangsvegi 4 og Ásvellir, íþróttamiðstöð. Kjósendur eru beðnir um að gefa sér góðan tíma og hafa í huga að góð bílastæði má einnig finna í nágrenni kjörstaða. Svo er tilvalið fyrir þau sem það geta að rölta til kjörstaðar.

Kjörskrá og kjörstaðir í Hafnarfirði

Kjörfundur í Hafnarfirði vegna alþingiskosninganna laugardaginn 30. nóvember 2024 hefst kl. 9 og lýkur kl. 22. Kjörstaðir í Hafnarfirði eru Lækjarskóli, Sólvangsvegi 4 og Ásvellir, íþróttamiðstöð. Kjörskrá í Hafnarfirði hefur legið frammi í þjónustuveri í Ráðhúsi Hafnarfjarðar frá og með 8. nóvember.  Þjónustuverið að Strandgötu 6 er opið frá kl. 8-16 alla virka daga og föstudaga frá kl. 8-14. Kjósendur eru beðnir um að gefa sér góðan tíma og hafa í huga að góð bílastæði má einnig finna í nágrenni kjörstaða. Svo er tilvalið fyrir þau sem það geta að rölta til kjörstaðar.

Hvar kýst þú? 

Kjörfundur í Hafnarfirði vegna alþingiskosninganna hefst kl. 9 og lýkur kl. 22. Kjörstaðir í Hafnarfirði eru Lækjarskóli, Sólvangsvegi 4 og Ásvellir, íþróttamiðstöð 

Smelltu hér til að finna þína kjördeild: Alþingiskosningar 2024 | Ísland.is (island.is) 

Hjá Þjóðskrá geta kjósendur kannað hvar þeir eru á kjörskrá í alþingiskosningunum. Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag. Yfirleitt birtast einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild. Viðmiðunardagur kjörskrár er kl. 12 þann 29. október 2024. Viðmunardagur kjörskrár segir til um hvar kjósendur eru skráðir á kjörskrá og þá hvar þeir eiga að kjósa. Ef kjósandi flytur lögheimili sitt eftir þann tíma er hann enn á kjörskrá miðað við fyrra heimilisfang. Kjósendum ber að framvísa persónuskilríki á kjörstað. Kjósendum er einnig bent á kosningavefinn www.kosning.is 

Kjósa utan kjörfundar 

Ef kjósendur geta ekki kosið á kjördag er hægt að kjósa utan kjörfundar. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst fimmtudaginn 7. nóvember. Hægt er að kjósa fyrir kjördag m.a. hjá sýslumönnum og erlendis. Kjósendur á Íslandi geta kosið hjá sýslumönnum. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu setur upp kjörstað í Holtagörðum.  

Yfirkjörstjórn Hafnarfjarðar 

Yfirkjörstjórn Hafnarfjarðar skipa þau Þórdís Bjarnadóttir, Hildur Helga Gísladóttir og Helena Mjöll Jóhannsdóttir. Yfirkjörstjórn hefur aðsetur í Lækjarskóla á kjördag á meðan á kjörfundi stendur. Símanúmer á kjörstöðum er: 555-0585 í Lækjarskóla og 525-8700 á Ásvöllum. 

Kjörskrá 

Kjörskrá í Hafnarfirði vegna alþingiskosninganna mun liggja frammi til sýnis í Ráðhúsi Hafnarfjarðar, þjónustuveri, Strandgötu 6, frá kl. 8-16 alla virka daga nema föstudaga frá kl. 8-14 frá og með 07.11.2024. Á kjörskrá í Hafnarfirði eru 22.011. 

Ábendingagátt