Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í dag var samþykkt samhljóða ályktun um ábyrgð ráðuneytis á þjónustu við flóttafólk. Hafnarfjarðarbær hefur frá árinu 2015 verið eitt þriggja sveitarfélaga landsins sem gert hefur samning við ríkisvaldið um móttöku einstaklinga í leit að alþjóðlegri vernd. Því mikilvæga samfélagslega verkefni hefur bærinn sinnt af alúð og metnaði og mikil sérþekking skapast.
Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í dag var samþykkt samhljóða ályktun um ábyrgð ráðuneytis á þjónustu við flóttafólk.
Hafnarfjarðarbær hefur frá árinu 2015 verið eitt þriggja sveitarfélaga landsins sem gert hefur samning við ríkisvaldið um móttöku einstaklinga í leit að alþjóðlegri vernd. Því mikilvæga samfélagslega verkefni hefur bærinn sinnt af alúð og metnaði og mikil sérþekking skapast. Auk þess hefur bæjarfélagið tekið á móti stórum hópi flóttafólks í gegnum samræmda móttöku. Nú er svo komið að hátt í 200 börn sem hafa komið til landsins á flótta eru í grunn- og leikskólum Hafnarfjarðar og leggur bæjarfélagið mikla áherslu á að sinna þeim einstaklingum vel.
Undanfarna mánuði hefur Hafnarfjarðarbær ítrekað komið því á framfæri við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið að bærinn geti ekki tekið á móti fleira flóttafólki í bili þar sem innviðir sveitarfélagsins séu fyrir all nokkru komnir að þolmörkum, sérstaklega hvað skólaþjónustu og stuðning til barna varðar.
Engu að síður hefur flóttafólki án samnings við bæjarfélagið fjölgað um nokkur hundruð á síðustu vikum. Fólkið er hingað komið og búsett í úrræðum sem Útlendingastofnun hefur komið upp í bæjarfélaginu algjörlega án samráðs við bæjaryfirvöld. Í erindum bæjarins til ráðuneytisins hefur því skýrt verið komið á framfæri að útilokað er að Hafnarfjarðarbær geti tekið við fleira flóttafólki og veitt því þá þjónustu sem lögum samkvæmt búsetusveitarfélaginu ber að gera, sbr. skólaþjónustu til barna. Þar sem viðræður og erindi til ráðuneytisins og Útlendingastofnunar hafa ekki skilað árangri, er ábyrgðinni á veitingu þjónustunnar hér með vísað til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins.
Hafnarfjarðarbær skorast alls ekki undan þátttöku í verkefninu og vill sinna því vel áfram með hagsmuni flóttafólks og hælisleitenda að leiðarljósi. Ríkið verður hins vegar að standa undir sinni ábyrgð í málinu og koma til móts við bæjarfélögin sem hafa tekið að sér þessi verkefni. Bæjarfélaginu ber lögum samkvæmt að gæta hagsmuna allra barna sem nú þegar eru í leik- og grunnskólakerfinu. Vegna skorts á samráði þola innviðir sveitarfélagsins hins vegar ekki frekari fjölgun flóttafólks án samnings og óskar Hafnarfjarðarbær því eftir því að félags- og vinnumarkaðsráðuneytið taki ábyrgð á því að viðeigandi þjónustu við flóttafólk verði sinnt.
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…