Appolo er listahátíð fyrir ungt fólk skipulögð af ungu fólki
Appolo, listahátíð ungs fólks er fyrsta listahátíðin sem skipulögð er fyrir ungt fólk og af ungu fólki í Hafnarfirði. Appolonafnið þykir afar viðeigandi þar sem það litríka lakkrískonfekt var einu sinni framleitt í sama húsi og hýsir Músik & mótor í dag. Allur októbermánuður verður undirlagður af Appolo.
Allur október verður undirlagður af Appolo – listahátíð unga fólksins
Appolo, listahátíð ungs fólks er fyrsta listahátíðin sem skipulögð er fyrir ungt fólk og af ungu fólki í Hafnarfirði. Appolonafnið þykir afar viðeigandi þar sem það litríka lakkrískonfekt var einu sinni framleitt í sama húsi og hýsir Músik & mótor í dag. Allur októbermánuður verður undirlagður af Appolo.
Opnunarhátíð föstudaginn 30. september á tveimur stöðum
Skapandi skrif, vegglistagerð, förðun, ljósmyndun, málun og Stelpur rokka!
Opnunarhátíð verður haldin föstudaginn 30. september í báðum ungmennahúsum bæjarins; Hamrinum og Músik & mótor. Fyrstu fjórar helgarnar í október eru svo undirlagðar af vinnusmiðjum af ýmsum toga og getur allt ungt fólk á aldrinum 13-25 ára skráð sig til leiks. Boðið verður upp á vinnustofur í skapandi skrifum, vegglistagerð, förðun, ljósmyndun, málun o.fl. Einnig verður boðið upp á vinnusmiðjur í samstarfi við samtökin Stelpur rokka! og eru öllum stelpum (sís og trans), trans strákum, kynsegin og intersex ungmennum sem hafa áhuga á tónlist, boðið að taka þátt.
Til að dæmið gangi upp þarf að miða við ákveðinn lágmarksfjölda og þátttökukostnað sem þó verður haldið í algjöru lágmarki eða að hámarki kr. 4.000.- Hægt er að sækja um námstyrk með því að senda tölvupóst með styrkumsókn á: mgm@hafnarfjordur.is. Síðasta helgin í október verður haldin opin uppskeruhátíð þar sem íbúar geta komið á sýningar og kynnt sér afurðir hópsins.
Opnunarhátíð í Músik & mótor föstudaginn 30. september
Opnun vegglistaverks eftir Þorbjörgu Signý í Músik & mótor, Dalshrauni 10, á milli 17-19 föstudaginn 30. september. Boðið upp á léttar veitingar og hægt að skoða allt það sem Músik & mótor hefur upp á að bjóða.
Opnunarhátíð í Hamrinum föstudaginn 30. september
Tónleikar í Hamrinum milli 20-23 þar sem fram koma m.a. Little Menace og Jón Möller.
Vinnusmiðjur á Appolo listahátíðinni – allan október
Hátíðin er m.a. styrkt af Hafnarfjarðarbæ í gegnum styrk frá menningar- og ferðamálanefnd og er það einlæg von skipuleggjenda að þátttakan slái öll met og að þessi listahátíð ungs fólks í bænum muni festa sig í sessi.
HAMARINN er virkur á FACEBOOK og Instagram – allar upplýsingar verða birtar á samfélagsmiðlum Hamarsins