Áramótabrenna á Ásvöllum

Fréttir

Bál tendrað í áramótabrennu kl. 20:30 á gamlárskvöld

Bál verður tendrað í áramótabrennu kl. 20.30 á gamlárskvöld. Áramótabrennan verður sem fyrr haldin á Ásvöllum, nú á íþróttasvæði Hauka á Völlunum, nánar tiltekið í hrauni fyrir framan íþróttamiðstöð. Knattspyrnufélagið Haukar og Hafnarfjarðarbær standa saman að brennunni. 

Gestum og gangandi er bent á að halda sig í góðri fjarlægð frá brennunni, klæða sig eftir veðri, skilja flugeldana eftir heima og njóta til fulls samveru með vinum, ættingjum og öðrum hressum íbúum og gestum Hafnarfjarðarbæjar. Íþrótta- og tómstundanefnd, forvarnafulltrúi, foreldraráð og foreldrafélög í Hafnarfirði ásamt lögreglu hvetja foreldra barna og unglinga í Hafnarfirði að gera gamlárskvöld að fjölskylduvænu og skemmtilegu kvöldi.

Að venju má búast við nokkurri umferð á Völlunum á gamlárskvöld og því mælt með að fólk leggi tímanlega af stað til að njóta brennu og flugelda. Einnig eru íbúar á Völlunum og í nærliggjandi hverfum hvattir til að fara þessa leið fótgangandi ef möguleiki er á því.

Ábendingagátt