Árlegt eldvarnaátak hófst í dag

Fréttir

Árlegt eldvarnaátak slökkviliðsmanna hófst í Lækjarskóla í Hafnarfirði í dag og stendur það fram í byrjun aðventu. Slökkviliðsmenn heimsækja nemendur í 3. bekk grunnskóla um allt land og fræða þá um eldvarnir. 

Árlegt eldvarnaátak slökkviliðsmanna hófst í Lækjarskóla í Hafnarfirði í dag og stendur það fram í byrjun aðventu. Slökkviliðsmenn heimsækja nemendur í 3. bekk grunnskóla um allt land og fræða þá um eldvarnir. Einn slíkur heimsótti nemendur í 3.bekk í Lækjarskóla í dag á upphafsdegi átaksins og spjölluðu þau Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri við börnin um eldvarnir. Bæjarstjóri brá sér í hlutverk slökkviliðsmanns þessa stund. Kannanir sýna að fræðsla um eldvarnir skilar sér hægt og bítandi þegar á heildina er litið og ljóst er að stór hluti almennings er mjög meðvitaður um mikilvægi eldvarna á heimilinu. 

Ert þú ekki örugglega með viðeigandi eldvarnarbúnað á þínu heimili þ.e. reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi?

Eldvarnir lakastar hjá 25-34 ára

Fólk á aldrinum 25-34 ára stendur öðrum langt að baki þegar kemur að eldvörnum á heimilinu samkvæmt könnun sem Gallup hefur gert fyrir Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) og Eldvarnabandalagið. Hvort sem litið er til fjölda reykskynjara eða slökkvibúnaðar stendur þessi aldurshópur mun lakar að vígi en aðrir. Kannanir sem Gallup hefur gert reglulega á undanförnum árum sýna þó að heimilin efla almennt eldvarnir og eru þannig betur búin undir að bregðast við eldsvoða. Um helmingur heimila hefur nú þann eldvarnabúnað sem mælt er með, það er reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi. Tíu prósent svarenda á aldrinum 25-34 ára hafa engan reykskynjara og önnur 24 prósent aðeins einn, samkvæmt könnun Gallup, en hlutfall þeirra sem hafa engan reykskynjara er mun lægra í öðrum aldurshópum, allt niður í þrjú prósent. Sömu sögu er að segja þegar litið er til slökkvitækja og eldvarnateppa á heimilum. Fólk á aldrinum 25-34 ára er mun ólíklegra til að hafa slíkan búnað á heimilinu en aðrir. Þannig segjast aðeins 49 prósent unga fólksins eiga eldvarnateppi en þetta hlutfall er allt að 66 prósent í öðrum aldurshópum og yfir 60 prósent að meðaltali.

Helstu niðurstöður könnunar Gallup eru þessar:

 

  • Á um helmingi heimila eru allt í senn reykskynjarar, slökkvitæki og eldvarnateppi.
  • Á 24 prósent heimila er enginn eða aðeins einn reykskynjari (38,4 prósent 2006).
  • Heimilum með fjóra reykskynjara eða fleiri hefur á sama tíma fjölgað úr 21,5 prósent árið 2006 í 33,3 prósent nú.
  • Slökkvitæki eru á um 74 prósent heimila og hefur þetta hlutfall aldrei mælst hærra.
  • Eldvarnir eru að jafnaði öflugastar hjá þeim sem búa í einbýli en lakastar hjá þeim sem búa í fjölbýli.

 

Helstu styrktaraðilar Eldvarnaátaksins eru Mannvirkjastofnun, 112, Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands, TM og slökkviliðin í landinu.

Ábendingagátt