Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2015 var lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í dag. Hækkun launa vegna starfsmats og nýrra kjarasamninga ásamt lífeyrisskuldbindingum vega þungt og skýra að mestu frávik frá fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir 2015.
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2015 verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í dag. Hækkun launa vegna starfsmats og nýrra kjarasamninga ásamt lífeyrisskuldbindingum vega þungt og skýra að mestu frávik frá fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir 2015. Fyrsti ársfjórðungur 2016 sýnir að úttekt og rekstrarrýni síðla árs 2015 mun skila jákvæðum rekstrarniðurstöðum á yfirstandandi rekstrarári.
Laun, launatengd gjöld og lífeyrisskuldbindingar vega þungt í rekstri
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar árið 2015 sýnir neikvæða rekstrarniðurstöðu um 512 milljónir króna. Helstu frávik frá áætlun, sem gerði ráð fyrir rekstrarafgangi að fjárhæð 219 milljónir, má einkum rekja til hækkunar launa vegna starfsmats og nýrra kjarasamninga sem nemur um 595 milljónum króna umfram áætlun. Lífeyrisskuldbinding sveitarfélagsins hækkaði um 1.042 milljónir króna eða um 435 milljónir króna umfram áætlun. Laun, launatengd gjöld og breyting lífeyrisskuldbindingar eru stærstu útgjaldaliðir sveitarfélagsins og námu þeir í heild 11.372 milljónum króna sem er 1.030 milljónum krónum hærra en áætlun gerði ráð fyrir. Annar kostnaður var 7.441 milljón, 485 milljónum umfram áætlun. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir nam 1.860 milljónum króna. Afskriftir námu 877 milljónum króna og fjármagnsliðir 1.496 milljónum króna sem er 344 milljónum króna undir áætlun. Veltufé frá rekstri nam um 953 milljónum króna sem er 1.288 milljónum króna lægra en áætlun gerði ráð fyrir. Tekjur voru 459 milljónum umfram áætlun eða um 20.673 í heild.
Hærri heildarskuldir en lægra skuldahlutfall
Heildarskuldir bæjarins hækkuðu um 417 milljónir króna á árinu vegna hækkunar lífeyrisskuldbindingar. Skuldahlutfall sveitarfélagsins heldur þó áfram að lækka og náði það 194% um áramót. Skuldahlutfallið var hæst 294% árið 2009. Skuldaviðmið var komið í 170% í lok árs 2015, viðmið sem var 274% árið 2009. Rekstur málaflokka var yfir áætlunum sem má að verulegu leyti rekja til launahækkana ársins. Stærsti málaflokkur Hafnarfjarðarbæjar er fræðslu- og frístundaþjónusta en til hans var varið um 9.814 milljónum króna á árinu 2015, til fjölskylduþjónustu um 2.930 milljónum króna og æskulýðs- og íþróttamála um 1.730 milljónum króna. Heildareignir í lok árs námu samtals 48.480 milljónum króna og hafa þær lækkað um 282 milljónir milli ára. Heildarskuldir og skuldbindingar námu samtals 40.184 milljónum króna.
Úttekt og umbætur í rekstri á nýju rekstrarári
Rekstur ársins 2015 var þungur. Ákveðið var að ráðast í rekstrarúttekt til að uppræta viðvarandi rekstrarvanda og opna á tækifæri til viðsnúnings. Umbótaáætlun í kjölfar úttektar og fjárhagsáætlun fyrir 2016 gera ráð fyrir slíkum viðsnúningi og að rekstur samstæðu verði jákvæður um sem nemur 361 milljón króna í lok yfirstandandi rekstrarárs. Frá því í lok síðasta rekstrarárs hefur markvisst verið unnið með niðurstöður úttektar og standa vonir til þess að með áframhaldandi vinnu, ábyrgð, festu og utanumhaldi þá muni fjárhagsstaða sveitarfélagsins vænkast til muna. Á næstu vikum fara í auglýsingu framkvæmdir og uppbygging á rúmlega 210 íbúðum í nýju Skarðshlíðahverfi, atvinnulóðir á Völlum og við Hellnahraun, Kapelluhraun og Selhraun auk þess sem verið er að skoða hvar fleiri möguleikar og tækifæri liggja til frekari uppbyggingar. Nýr grunnskóli er í undirbúningi og leikskóli í byggingu á Völlunum, nýtt hjúkrunarheimili á Sólvangi og íþróttahús á Ásvöllum, allt til að svara aukinni eftirspurn og þörf á svæðinu. Fjöldi fyrirtækja hefur sest að í og við Hellnahraun og eru fleiri fyrirtæki væntanleg á svæðið enda um að ræða stækkandi og spennandi iðnaðarsvæði sem býður upp á mjög mikla möguleika. Rík áhersla hefur verið lögð á að tryggja alla mikilvæga innviði, þ.m.t. að ríkið flýti framkvæmdum við mislæg gatnamót á mótum Krýsuvíkurvegar og Reykjanesbrautar. Vaxandi fjöldi íbúa og aukin starfsemi eykur umsvif og þar með tekjur bæjarins. Áframhaldandi verkefni sveitarfélagsins næstu mánuði verður að ná enn betri tökum á útgjöldum og niðurgreiðslu skulda þannig að auka megi eigið fé og þar með ábyrgari fjárfestingar. Næstu mánuðir fara í það að fylgja fleiri tillögum úttektar eftir sem allar miða að því að efla og bæta þjónustu við íbúa og starfandi fyrirtæki í bænum með ábyrgum hætti.
Ársreikning Hafnarfjarðarkaupstaðar 2015 er að finna hér
Síðasta Jólaþorps-helgin er nú hafin. Fjölmargt að sjá og gera. Yndislegt er að stækka enn upplifunina með því að kíkja…
Ný skammtímadvöl fyrir fötluð börn, sem tók til starfa í Hafnarfirði í haust, var formlega opnuð í vikunni þegar starfsfólk…
Rósa Guðbjartsdóttir sat sinn síðasta bæjarstjórnarfund sem bæjarstjóri á miðvikudag. Ráðningasamningur við nýjan bæjarstjóra var undirritaður á fundinum. Rósu voru…
Hátt í sjötíu voru samankomin í undirgöngunum við Hörðuvelli á föstudagseftirmiðdag þegar Byggðasafn Hafnarfjarðar opnaði sýninguna sína Köldu ljósin. Sýningin…
Gleði, eftirvænting, friður, minningar og endurfundir eru hugtök sem eiga við dæmigerð íslensk jól, ritar Arnór Bjarki Blomsterberg, sóknarprestur í…
Söfn og stofnanir bæjarins verða opin á eftirfarandi dögum og tímum yfir hátíðarnar. Löng útlán á DVD myndum gilda á…
Bestu stundirnar um jólin leynast oft í stundlaugum bæjarins. Sundlaugar Hafnarfjarðar verða opnar um jól og áramót sem hér segir.
„Við systkinin erum öll orðin svo gott sem fullorðin og tvö komin á fertugsaldur, en öll viljum við hvergi annars…
Nýr sex deilda leikskóli verður tekinn í notkun í Hamranesi á árinu 2025 sem og nýtt knatthús að Ásvöllum og…
Hvað er betra en að kynnast sögunni á hlaupum? Nú eru aðeins tveir dagar í Kaldárhlaupið, 10 km hlaup í…