Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2018 var lagður fram í bæjarráði í dag. Fjárhagsstaða Hafnarfjarðarbæjar heldur áfram að styrkjast þrátt fyrir miklar fjárfestingar á árinu og óhjákvæmilegar lántökur. Rekstrarafgangur ársins fyrir A og B hluta bæjarsjóðs nam 1.129 milljónum króna en áætlun gerði ráð fyrir 799 milljónum króna afgangi. Veltufé frá rekstri var 3.863 milljónir króna eða 14,4% af heildartekjum.
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2018 var lagður fram í bæjarráði í dag. Fjárhagsstaða Hafnarfjarðarbæjar heldur áfram að styrkjast þrátt fyrir miklar fjárfestingar á árinu og óhjákvæmilegar lántökur. Rekstrarafgangur ársins fyrir A og B hluta bæjarsjóðs nam 1.129 milljónum króna en áætlun gerði ráð fyrir 799 milljónum króna afgangi. Veltufé frá rekstri var 3.863 milljónir króna eða 14,4% af heildartekjum. „Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar sýnir ábyrga fjármálastjórn og trausta fjárhagsstöðu. Skuldaviðmið sveitarfélagsins heldur áfram að lækka og rekstrarniðurstöður heilt yfir eru jákvæðar og yfir áætlunum“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar um niðurstöður ársreikningsins sem kynntur var í dag. Rekstrarafgangur ársins fyrir A og B hluta bæjarsjóðs nam 1.129 milljónum króna. Rekstrarniðurstaða ársins fyrir A hluta var jákvæð um 490 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir 213 milljóna króna afgangi. Heildartekjur ársins voru 926 milljónum króna hærri en áætlun gerði ráð fyrir eða 3,6% yfir áætlun.
Fjárfestingar á árinu 2018 námu 5.289 milljónum króna. Meðal helstu framkvæmda voru bygging nýs skóla í Skarðshlíð fyrir 2.061 milljón króna, bygging hjúkrunarheimilis fyrir 850 milljónir króna og framkvæmdir vegna íþróttamannvirkja að Ásvöllum, Kaplakrika og við Keili fyrir alls um 696 milljónir króna. Kaupverð íbúða í félagslegt húsnæðiskerfi sveitarfélagsins nam 457 milljónum króna og endurbætur á St. Jósefsspítala, um 113 milljónum króna. Um einn milljarður króna fóru í framkvæmdir við gatnagerð. Tekin voru ný lán á árinu vegna uppgjörs við Brú lífeyrissjóð um 2 milljarðar króna og um 1,4 milljarður króna vegna byggingar hjúkrunarheimilis. Auk þess var tekið 500 milljóna króna lán vegna fjárfestinga Húsnæðisskrifstofu á leiguíbúðum í félagslega kerfið. Greiðslur langtímaskulda námu alls 1,6 milljarði króna eða um 200 milljónir króna umfram afborganir samkvæmt lánasamningum.
„Rekstur Hafnarfjarðarbæjar er agaður og borin er virðing fyrir skattfé bæjarbúa. Fjölgun íbúa kallar á nauðsynlega uppbyggingu innviða samhliða mikilvægu viðhaldi á öllum eignum bæjarins. Skammt er síðan Hafnarfjarðarbær var undir sérstöku eftirliti eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga en nú er öldin önnur. Þennan góða árangur má þakka stjórnendum bæjarins og starfsmönnum. Með ábyrgum rekstri undanfarinna ára eru allar undirstöður rekstrar bæjarfélagsins í góðu lagi og bærinn hefur burði til að takast á við þær áskoranir sem kunna að felast í þeirri kælingu efnahagslífsins sem nú blasir við. Við horfum því bjartsýn fram á veginn“ segir Rósa.
Skatttekjur voru 236 milljónum króna hærri en áætlun gerði ráð fyrir. Framlög jöfnunarsjóðs voru 270 milljónir króna umfram áætlun og aðrar tekjur voru 420 milljónir króna umfram áætlun en þar af nam tekjufærsla vegna seldra lóða um 65 milljónum króna. Kostnaður var um 416 milljónir króna umfram áætlun sem er 1,8% frávik. Fjármagnsliðir voru um 153 milljónum krónum hærri en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstur málaflokka var í takti við fjárhagsáætlun en helstu frávik má rekja til hækkunar vistunargjalda, aukins kostnaðar í málefnum fatlaðs fólks og aðkeyptrar kennsluþjónustu. Heildareignir í lok árs námu samtals 55.971 milljón króna og jukust um 4.798 milljónir milli ára. Heildarskuldir og skuldbindingar námu samtals 43.191 milljónum króna og hækkuðu um 3.004 milljónir króna á milli ára. Langtímaskuldir jukust um 2.944 milljónir króna vegna fyrrgreindrar lántöku, lífeyrisskuldbinding hækkaði um 525 milljónir króna en skammtímaskuldir lækkuðu um 763 milljónir króna.
Íbúar Hafnarfjarðar voru 29.791 þann 1. desember 2018 samanborið við 29.360 árið áður sem er íbúafjölgun um 431 eða 1,5%.
Ársreikning Hafnarfjarðarbæjar má nálgast HÉR
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…