Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Rekstrarniðurstaða ársins var jákvæð um 76 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir rekstrarafgangi að fjárhæð 619 milljónir. Þetta frávik má m.a. rekja til hækkunar á lífeyrisskuldbindingu sveitarfélagsins, um 928 milljónir króna, sem er 515 milljónir umfram áætlun.
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar var samþykktur á fundi sem nú var að ljúka.
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2014 sýnir að fjárhagsstaða sveitarfélagsins er áfram erfið og að mikilvægt er að minnka útgjöld og greiða niður skuldir. Rekstarniðurstaða ársins, A- og B-hluta, var jákvæð um einungis 76 milljónir króna, sem er ekki í samræmi við aðlögunaráætlun sem gerð var með samningi við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Þetta getur haft þau áhrif að vextir hækki tímabundið þar sem veltufé frá rekstri nær ekki þeim viðmiðunum sem sett voru sem skilyrði í samningum um endurfjármögnun erlendra lána. Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 492 millj. kr. Samanborið við að fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu að upphæð 216 millj. kr.
Rekstrarniðurstaða ársins var jákvæð um 76 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir rekstrarafgangi að fjárhæð 619 milljónir. Þetta frávik má m.a. rekja til hækkunar á lífeyrisskuldbindingu sveitarfélagsins, um 928 milljónir króna, sem er 515 milljónir umfram áætlun. Einnig hefur ráðgjafa- og lántökukostnaður vegna endurfjármögnunar, alls 156 milljónir króna, sem ekki var gert ráð fyrir í áætlunum, áhrif á niðurstöðuna.
Óvenjulegir liðir eru gjaldfærsla vegna niðurstöðu dóms Hæstaréttar frá 5. mars 2015 að sveitarfélaginu beri að greiða ríkinu fjármagnstekjuskatt 15% en ekki 10% eins og gert hafði verið ráð fyrir í reikningum sveitarfélagsins auk vaxta vegna sölu á eignarhlut í HS Orku hf. á árinu 2008 að fjárhæð 333 milljóna króna.
Tekjur námu 19.648 milljónum króna sem er 418 milljónum umfram áætlun. Laun og launatengd gjöld eru stærsti útgjaldaliður sveitarfélagsins og námu 9.985 milljónum króna sem er 442 milljónum krónum hærri en áætlun gerði ráð fyrir. Annar kostnaður var 7.163 milljónir sem er 230 milljónum króna umfram áætlun. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og óreglulega liði nam 1.634 milljónum króna. Fjármagnsliðir námu 1.226 milljónum króna sem er 67 milljónum umfram áætlun. Veltufé frá rekstri nam um 1.593 milljónum króna sem er 478 milljónum lægra en áætlun gerði ráð fyrir.
Rekstur málaflokka gekk vel og var í takt við áætlun. Stjórnendur stofnana eiga hrós skilið fyrir hvernig til hefur tekist við að halda fjárhagsáætlunum. Stærsti málaflokkurinn er fræðslu- og uppeldismál en til hans var varið um 8.748 milljónum króna. Til félagsþjónustu var varið um 2.637 milljónum króna og til æskulýðs- og íþróttamála var varið um 1.599 milljónum króna. Heildareignir í lok árs námu samtals 48.198 milljónum króna og hafa þær lækkað um 285 milljónir milli ára og heildarskuldir og skuldbindingar námu samtals 39.766 milljónum króna.
Endurskoðendur reikninga bæjarins vekja sérstaka athygli á veltufjárhlutfalli og skuldastöðu sveitarfélagsins og er mikilvægt að taka þeim ábendingum alvarlega. Neikvæð rekstrarniðurstaða A-hluta bæjarsjóðs upp á 492 milljónir króna og veltufjárhlutfall 0,23% er óásættanlegt. Einnig eru fjármagnsgjöld verulega íþyngjandi en þau nema 6,2% af tekjum sveitarfélagsins, eða um 1.2 milljarði króna, sem er afar hátt hlutfall.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar telur að góðar forsendur séu fyrir því að snúa fjármálum bæjarins til betri vegar verði rétt að málum staðið og tekið á hlutunum af ábyrgð og festu. Meðal annars er mikilvægt að styrkja stoðirnar, laða að fyrirtæki og íbúa til að auka umsvif og þar með tekjur bæjarins. Stærsta viðfangsefnið í stjórnun sveitarfélagsins á næstunni verður þó að ná betri tökum á útgjöldum og niðurgreiðslu skulda. Vonir eru bundnar við að rekstrarúttekt á stofnunum bæjarins og tillögur í kjölfar hennar muni hafa jákvæð áhrif á fjárhag Hafnarfjarðarbæjar til framtíðar. Mikilvægt er að skapa svigrúm til lækkunar á gjöldum og álögum sveitarfélagsins, viðhalda eða auka þjónustu og hefja uppbyggingu fyrir eigið fé til hagsbóta fyrir bæjarbúa alla.
Síðasta Jólaþorps-helgin er nú hafin. Fjölmargt að sjá og gera. Yndislegt er að stækka enn upplifunina með því að kíkja…
Ný skammtímadvöl fyrir fötluð börn, sem tók til starfa í Hafnarfirði í haust, var formlega opnuð í vikunni þegar starfsfólk…
Rósa Guðbjartsdóttir sat sinn síðasta bæjarstjórnarfund sem bæjarstjóri á miðvikudag. Ráðningasamningur við nýjan bæjarstjóra var undirritaður á fundinum. Rósu voru…
Hátt í sjötíu voru samankomin í undirgöngunum við Hörðuvelli á föstudagseftirmiðdag þegar Byggðasafn Hafnarfjarðar opnaði sýninguna sína Köldu ljósin. Sýningin…
Gleði, eftirvænting, friður, minningar og endurfundir eru hugtök sem eiga við dæmigerð íslensk jól, ritar Arnór Bjarki Blomsterberg, sóknarprestur í…
Söfn og stofnanir bæjarins verða opin á eftirfarandi dögum og tímum yfir hátíðarnar. Löng útlán á DVD myndum gilda á…
Bestu stundirnar um jólin leynast oft í stundlaugum bæjarins. Sundlaugar Hafnarfjarðar verða opnar um jól og áramót sem hér segir.
„Við systkinin erum öll orðin svo gott sem fullorðin og tvö komin á fertugsaldur, en öll viljum við hvergi annars…
Nýr sex deilda leikskóli verður tekinn í notkun í Hamranesi á árinu 2025 sem og nýtt knatthús að Ásvöllum og…
Hvað er betra en að kynnast sögunni á hlaupum? Nú eru aðeins tveir dagar í Kaldárhlaupið, 10 km hlaup í…