Ási kisi tínir plast í Hafnarfirði og fer með heim
Ási kisi er 5 ára. Hann elskar hreinan Hafnarfjörð og plokkar því upp plastið sem hann finnur og dregur heim. Já, Ási kisi leggur okkur svo sannarlega lið í plokkinu. Hann er fyrirmynd! Hjálpum Ása kisa að halda firðinum fagra hreinum í allt sumar.
Sérðu Ása með plast í munni?
„Ási kisi er aðalgaurinn í bænum,“ segir Sigríður Júlía Bjarnadóttir fóstra Ása sem er köttur sem hún fékk á sínum tíma í Kattholti. „Hann er að verða fimm ára og búinn að tína upp plast alla tíð. Ég á risabing sem hann hefur tínt saman. Hann er pikkí, tekur alltaf bara plast,“ segir Sigríður Júlía.
Ási tekur ekki aðeins þátt í Stóra plokkdeginum árlega. Hann tínir á hverjum degi! Við getum farið að ráðum Ása kisa og tínt upp plastið sem við sáum sem og annað rusl í bænum okkar fagra. Ási er fyrirmynd. Hann plokkar allt árið.

Ási plokkar daglega
„Hann kemur nánast daglega með plast heim, stundum tvö,“ segir Sigríður en að Ási taki þó pásu þegar snjórinn hylji plastið. „Hann kemur annað slagið með fugl og mús heim. En ekkert annað rusl en plast.“
Ási kisi prýðir nú plakat sem hangir víða um bæinn til að minna okkur á að halda bænum okkar hreinum. Það getur verið hvetjandi fyrir börn að fá smá verðlaun. Þau fá plakat af Ása kisa í þjónustuverinu í Ráðhúsinu plokki þau upp rusl og setja í næstu tunnu. Eina sem þarf er að sýna mynd af ruslinu sem fór í tunnuna og börnin fá plakat yfir þjónustuborðið.
Ási merkilegur kisi
Ási kisi er merkilegur köttur. Hann er til að mynda með Facebook-síðu. Þar má sjá plastið sem hann safnar en einnig hvernig hann hleypur um Hafnarfjörð þveran og endilangan. „Hann var með gps-tæki og við sáum að hann fer víða. Hann hefur farið 10 km á einum sólarhring. En nú hefur hann týnt tækinu.“
Sigríður Júlía er stolt af Ása kisa. Hún hefur haldið vel í allt plastið sem hann hefur dregið heim. „Já, það er gagn af honum Ása kisa. Sumt plastið er hrikalega skítugt. Ég held hann fari stundum ofan í gjótur og sæki plastið,“ segir Sigríður Júlía.
„Ég vona að þetta uppátæki hans verði öðrum hvatning. Kannski gætu krakkar tekið upp á því að týna rusl þegar þau sjá hvað Ási kisi er duglegur!“ segir Sigríður vongóð. „Já, þetta er flottur köttur.“
Við hvetjum ykkur öll að halda Hafnarfirðinum fagra hreinum — Rétt eins og Ási gerir!
- Fáðu plakat af Ása hér
- Kynnumst Ása betur. Skoðaðu Facebook-síðuna hans