Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Samfélagsverkefnið Brúkum bekki fékk á dögunum veglega gjöf frá Ásmegin sjúkraþjálfun þegar afhentir voru tíu bekkir af gerðinni Klettur. Bekkirnir hafa allir verið settir upp í kringum Ástjörn og í næsta nágrenni. Þessi gjöf Ásmegin er stærsta einstaka gjöf í verkefnið frá upphafi. Brúkum bekki verkefnið telur nú rúmlega 55 bekki sem staðsettir eru víðsvegar um Hafnarfjörð.
Ásmegin sjúkraþjálfun er staðsett að Ásvöllum 2 (Ásvallalaug) og býður staðsetningin nú þegar upp á fjölbreytta þjálfun s.s. vatnsleikfimi og hóptíma í tækjasal í samstarfi við önnur félög og fyrirtæki í húsinu. Staðsetning tíu bekkja í næsta nágrenni eykur tækifæri og möguleika laugargesta, íbúa og viðskiptavina Ásmegin til heilsueflingar og hreyfingar á svæðinu.
Brúkum bekki er sameiginlegt verkefni Öldungaráðs, Félags eldri borgara í Hafnarfirði, Félags sjúkraþjálfara og Hafnarfjarðarbæjar. F.v. Gunnlaugur Briem formaður Félags sjúkraþjálfara, Gylfi Ingvarsson hjá öldungaráði, Valgerður Sigurðardóttir hjá FebH, Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri, Kristinn Magnússon eigandi Ásmegin og Herdís Hjörleifsdóttir verkefnastjóri hjá Hafnarfjarðarbæ .
Brúkum bekki er samfélagsverkefni sem staðið hefur yfir frá árinu 2013 og er nú svo komið að Hafnfirðingar og aðrir gestir geta gengið um nær öll hverfi Hafnarfjarðar og hvílt sig á bekk með um 250 – 300 metra millibili. Markmiðið er að stuðla að aukinni hreyfingu meðal m.a. eldri borgara og gera þeim kleift að fara út að ganga í sínu nærumhverfi. Verkefnið felur í sér að sveitarfélög, fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir og jafnvel einstaklingar styrkja verkefnið með því að taka að sér að greiða fyrir gerð bekkjar eða bekkja.
Rúmlega 30 fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök hafa tekið þátt í verkefninu frá árinu 2013 með gjöf á einum eða fleiri bekkjum. Í heild eru bekkirnir orðnir 55 með gjöf Ásmegin. Bekkirnir eru framleiddir hjá Málmsteypunni Hellu sem gefur að auki ellefta hvern bekk. Bekkirnir eru merktir þeim sem bekkina gefa eða þeim aðila sem gefandi vill tileinka bekkinn. Brúkum bekki er sameiginlegt verkefni Öldungaráðs, Félags eldri borgara í Hafnarfirði, Félags sjúkraþjálfara og Hafnarfjarðarbæjar.
Stutt í næsta bekk | Fréttir | Hafnarfjörður (hafnarfjordur.is)
Vígsla og afhending á verðlaunabekknum Vörður | Fréttir | Hafnarfjörður (hafnarfjordur.is)
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…