Átt þú rétt á viðbótarafslætti?

Fréttir

Nú í upphafi skólaárs er nauðsynlegt að endurnýja umsóknir um viðbótarafslátt af leikskólagjöldum og viðbótarniðurgreiðslur til dagforeldra og verða allar eldri umsóknir sem bárust fyrir 1. júlí felldar úr gildi frá 1. nóvember n.k. 

Nú í upphafi skólaárs er nauðsynlegt að endurnýja umsóknir
um viðbótarafslátt af leikskólagjöldum og viðbótarniðurgreiðslur til dagforeldra og verða allar eldri umsóknir
sem bárust fyrir 1. júlí felldar úr gildi frá 1. nóvember n.k. Til að öðlast
viðbótarafslátt eða viðbótarniðurgreiðslu þarf umsókn að berast í gegnum MÍNAR SÍÐUR

Viðbótarafsláttur af leikskólagjöldum og viðbótarniðurgreiðsla til dagforeldra  

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur samþykkt viðbótarafslátt af
leikskólagjöldum (einungis af dvalargjaldi) vegna skólaársins 2021-2022 og viðbótarniðurgreiðslur til dagforeldra samkvæmt eftirfarandi tekjuviðmiðum foreldra og
forráðamanna: 

Einstaklingur

  • 0 til 5.097.780 kr. (allt að á mánuði 424.815 kr.) 75% afsláttur eða viðbótarniðurgreiðsla 1
  • 5.097.780 til 6.117.335 kr. (allt að á mánuði 509.778 kr.)  50% afsláttur eða viðbótarniðurgreiðsla 2

Fólk í sambúð

  • 0 til 7.646.671 kr. (allt að á mánuði 637.223 kr.) 75% afsláttur eða viðbótarniðurgreiðsla 1
  • 7.646.672 til 9.176.004 kr. – (allt að á mánuði 764.667 kr.) 50% afsláttur eða viðbótarniðurgreiðsla 2

Afsláttur er reiknaður út frá tekjum sl. þriggja
mánaða frá umsókn samkvæmt staðgreiðsluyfirliti. Umsókn um afslátt og viðbótarniðurgreiðslu þarf að
berast fyrir 1. nóvember n.k. og endurnýja fyrir hvert skólaár. Umsóknir sem berast
seinna þurfa að berast fyrir 20. hvers mánaðar vegna leikskólagjalda
næsta mánaðar. Greiðslur eru ekki leiðréttar afturvirkt. 

Fylgigögn sem þurfa að fylgja umsókn eru staðgreiðsluyfirlit frá RSK sem sýnir tekjur sl. þriggja mánaða (hægt að nálgast rafrænt á www.skattur.is)

Nánari upplýsingar er að finna á síðunum hér fyrir ofan, hjá þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar í síma 585-5500, í gegnum netspjall á vef eða með tölvupósti: hafnarfjordur@hafnarfjordur.is

Ábendingagátt