Atvinnutengt sumarúrræði fyrir ungt fólk með fötlun

Barnvænt sveitarfélag Fréttir

Verkherinn er atvinnutengt sumarúrræði fyrir ungt fólk með fötlun eða skerta starfsgetu. Flestir fara út á almennan vinnumarkað einhvern tímann á lífsleiðinni. Sumarúrræði Verkhersins er góður undirbúningur fyrir það sem koma skal og gefur ungmennum tækifæri á að spreyta sig við vinnu á vinnustöðum og taka þátt í skemmtilegu námskeiði.

Verkherinn fyrir ungt fólk með fötlun eða skerta starfsgetu

Verkherinn er atvinnutengt sumarúrræði fyrir ungt fólk með fötlun eða skerta starfsgetu. Flestir fara út á almennan vinnumarkað einhvern tímann á lífsleiðinni. Sumarúrræði Verkhersins er góður undirbúningur fyrir það sem koma skal og gefur ungmennum tækifæri á að spreyta sig við vinnu á vinnustöðum og taka þátt í skemmtilegu námskeiði. Verkherinn fer fram í Húsinu, við Suðurgötu 14, 220 Hafnarfirði. Gengið er inn Strandgötumegin.

Hverjir geta sótt um atvinnu í Verkhernum?

Ungmenni með fatlanir eða skerta starfsgetu á aldrinum 16 – 20 ára geta sótt um í Verkhernum. Unnið er fyrir hádegi alla virka daga. Ungmennum býðst einnig tækifæri á að taka þátt í félagsstarfi eða frístundarstarfi eftir hádegi.

Hvað er gert í Verkhernum?

Unnið er í samstarfi við fyrirtæki í bænum. Undanfarin ár hefur Verkherinn verið í samstarfi við t.d. Krónuna, Bókasafn Hafnarfjarðar, leikskóla, grunnskóla o.fl. Einnig er í boði einstaklingsmiðað starf þar sem verkefni eru sniðin eftir þörfum og starfsgetu hvers og eins.

Tímabil Verkhersins

Verkherinn er starfandi frá og með 26 maí – 4 júlí (6 vikur) og svo aftur frá og með 5 – 15 ágúst (2 vikur). Lokað er í Verkhernum í 4 vikur frá og með 7 júlí – 4 ágúst.

Hvernig er sótt um atvinnu í Verkhernum?

Til þess að sækja um þarf að fylla út rafrænt skjal
Þeir sem lenda í vandræðum með umsóknarferlið geta sent póst á verkherinn@hafnarfjordur.is

Umsóknarfrestur er til 23 mars

Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við:

Ábendingagátt