Auka pokar fyrir almennt sorp

Fréttir

Stórhátíðum fylgir yfirleitt heldur meira sorp en gengur og gerist aðra mánuði ársins. Í desember og fram í janúar (14. jan) ætlar Hafnarfjarðarbær að bjóða til sölu auka poka fyrir almennt sorp. Pokarnir eru úr niðurbrjótanlegu plasti og sérmerktir þessu verkefni.

Stórhátíðum fylgir yfirleitt heldur meira sorp en gengur og gerist aðra mánuði ársins. Í desember og fram í janúar (14. jan) ætlar Hafnarfjarðarbær að bjóða til sölu auka poka fyrir almennt sorp. Þessa poka má setja við hlið sorptunna og verða þeir teknir við reglubundna sorphirðu í bænum á þessu tímabili. Pokarnir eru úr niðurbrjótanlegu plasti og sérmerktir þessu verkefni.

Orkutunna – auka umhverfisvænir pokar

Auka pokarnir eru einungis hugsaðir fyrir almennan heimilisúrgang og eru hirtir við næstu losun á grátunnunni.  Í grátunnuna fer almennt heimilissorp s.s. matarleifar, bleiur og matarmengaðar umbúðir auk málma. Ekki skal setja neinn endurvinnanlegan pappír eða spilliefni í þessa tunnu, í slíkum tilfellum skal nota blátunnu eða sækja þjónustu til næstu grenndargámastöðvar eða Sorpu. Hver grátunna er tæmd á 14 daga fresti og blátunnan á 28 daga fresti.  Sorphirðudagatal fyrir öll hverfi í Hafnarfirði og frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar eða HÉR 

Hægt er að kaupa pokana í Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar að Strandgötu 6 og hjá Þjónustumiðstöð á Norðurhellu auk þess sem Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug verða með pokana til sölu á sínum opnunartíma. 

Verð á poka er kr. 550.- sem er kostnaður við losun og förgun.

Ábendingagátt