Auka pokar fyrir almennt sorp

Fréttir

Stórhátíðum fylgir yfirleitt heldur meira sorp en gengur og gerist aðra mánuði ársins. Í desember og fram í janúar (15. jan) ætlar Hafnarfjarðarbær að bjóða til sölu auka poka fyrir almennt sorp. 

Stórhátíðum fylgir yfirleitt heldur meira sorp en gengur og gerist aðra
mánuði ársins. Í desember og fram í janúar (15. jan) ætlar Hafnarfjarðarbær að
bjóða til sölu auka poka fyrir almennt sorp. Þessa poka má setja við hlið
sorptunna og verða þeir teknir við reglubundna sorphirðu í bænum á þessu
tímabili. Pokarnir eru úr niðurbrjótanlegu plasti og sérmerktir þessu verkefni.

Orkutunna – auka umhverfisvænir pokar

Auka pokarnir eru einungis hugsaðir fyrir almennan heimilisúrgang og
eru hirtir við næstu losun á grátunnunni.  Í grátunnuna fer almennt
heimilissorp s.s. matarleifar, bleiur og matarmengaðar umbúðir auk málma. Ekki
skal setja neinn endurvinnanlegan pappír eða spilliefni í þessa tunnu, í slíkum
tilfellum skal nota blátunnu eða sækja þjónustu til næstu grenndargámastöðvar
eða Sorpu. Hver grátunna er tæmd á 14 daga fresti og græntunnan á 28 daga
fresti.  Sorphirðudagatal fyrir öll hverfi í Hafnarfirði og frekari
upplýsingar er að finna á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar eða  hér 

Hægt er að kaupa pokana í Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar að Strandgötu 6 og
hjá Þjónustumiðstöð á Norðurhellu auk þess sem Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug
verða með pokana til sölu á sínum opnunartíma. Verð á poka er kr. 550.- sem er
kostnaður við losun og förgun.

Ábendingagátt