Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar

Fréttir

Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni.

Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2019. Einungis listamenn með fasta búsetu í Hafnarfirði koma til greina við úthlutun og er miðað við lögheimili síðustu 12 mánuði. 

Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni. Umsóknum og ábendingum skal skilað á rafrænu eyðublaði , með tölvupósti á menning@hafnarfjordur.is eða í Ráðhús Hafnarfjarðar merkt: 

Þjónustuver Hafnarfjarðar – Bæjarlistamaður
Strandgötu 6
220 Hafnarfirði 

Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2018 fær greidda 1,5 milljón króna.

Skilafrestur er til  1. febrúar. 

Ábendingagátt