Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar

Fréttir

Hafnarfjarðarbær mun þann 19. apríl, á síðasta vetrardag, útnefna Bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2017. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum og er skilafrestur til 1. febrúar.

Hafnarfjarðarbær mun þann 19. apríl, á síðasta vetrardag, útnefna Bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2017. Einungis starfandi listamenn með fasta búsetu í Hafnarfirði koma til greina við úthlutun og er miðað við lögheimili síðustu 12 mánuði.

Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni. Umsóknum og ábendingum skal skilað á þess til gerðum eyðublöðum sem fást á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar.

Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2017 fær greidda eina milljón króna.

Skilafrestur er til  1. febrúar.  

Eyðublað fyrir tilnefningu/ábendingu er að finna hér

Hægt er að senda tilnefningar/ábendingar á netfangið: menning@hafnarfjordur.is á þar til gerðum eyðublöðum. Einnig er hægt að skila tilnefningu/ábendingu í þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar merkt:

Bæjarlistamaður 2017
Þjónustuver Hafnarfjarðar, Strandgötu 6
220 Hafnarfjörður

Ábendingagátt