Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar

Fréttir

Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum við val á bæjarlistamanni sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar.

Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2018. Einungis listamenn með fasta búsetu í Hafnarfirði koma til greina við úthlutun og er miðað við lögheimili síðustu 12 mánuði. 

Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni. Umsóknum og ábendingum skal skilað á þess til gerðu eyðublaði.

Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2018 fær greidda 1,5 milljón króna.

Skilafrestur er til  1. febrúar.  

Ábendingum má skila á rafrænu eyðublaði , með tölvupósti á menning@hafnarfjordur.is eða í Ráðhús Hafnarfjarðar merkt:
Bæjarlistamaður
Þjónustuver Hafnarfjarðar, Strandgötu 6
220 Hafnarfirði 

Ábendingagátt