Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2020

Fréttir

Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2020. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni.

Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2020. Einungis listamenn með fasta búsetu í Hafnarfirði koma til greina við úthlutun og er miðað við lögheimili síðustu 12 mánuði.

Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni. Umsóknum og ábendingum skal skilað á rafrænu eyðublaði á vef Hafnarfjarðarbæjar, með tölvupósti á menning@hafnarfjordur.is eða í Ráðhús Hafnarfjarðar merkt:

Þjónustuver Hafnarfjarðar – Bæjarlistamaður
Strandgötu 6
220 Hafnarfirði

Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2020 fær greidda 1,5 milljónir króna.

Skilafrestur er til 1. febrúar.

 

Tengt efni:

Ábendingagátt