Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2022
Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 20. apríl, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2022. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni.
Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 20. apríl, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2022. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni. Friðrik Dór Jónsson var bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2021.
Einungis listamenn með fasta búsetu í Hafnarfirði koma til greina við úthlutun og er miðað við lögheimili síðustu 12 mánuði. Umsóknum og ábendingum skal skilað á rafrænu eyðublaði á vef Hafnarfjarðarbæjar eða í Ráðhús Hafnarfjarðar merkt:
Þjónustuver Hafnarfjarðar – Bæjarlistamaður
Strandgötu 6
220 Hafnarfirði
Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2022 fær greidda 1,5 milljónir króna.
Skilafrestur tilnefninga er til 1. febrúar 2022.
Tengt efni: