Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2026
Útnefning bæjarlistamans Hafnarfjarðar fyrir árið 2026. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni. Skilafrestur tilnefninga er til 9. febrúar.
Hver verður bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2026?
Hafnarfjarðarbær mun útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2026 við hátíðlega athöfn í Hafnarborg, fimmtudaginn 9. apríl. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni. Arngunnur Ýr myndlistakona var bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2025.
Skilafrestur tilnefninga er til 9. febrúar 2026
Einungis listamenn með fasta búsetu í Hafnarfirði koma til greina við úthlutun og er miðað við lögheimili síðustu 12 mánuði. Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2026 fær greiddar 500 þúsund krónur. Umsóknum og ábendingum skal skilað á rafrænu eyðublaði á vef Hafnarfjarðarbæjar eða með tölvupósti á menning@hafnarfjordur.is
Tengt efni: